Talsverðar skemmdir urðu á einni stærstu olíubirgðastöð Mið-Austurlanda í drónaárás Írana á Sameinuðu arabísku furstadæmin. Bandaríkjaforseti hefur kallað eftir liðsauka til að tryggja olíuflutninga um Hormússund. Mikill svartur reykur stígur upp úr olíbirgðastöðinni við höfnina í Fujairah í Sameinuðu arabísku furstadæmunum eftir árás Írana. Höfnin er ein sú fjölfarnasta í heimi og ef starfsemi birgðastöðvarinnar skerðist gæti heimsmarkaðsverð olíu hækkað enn frekar. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur kallað eftir liðsauka í formi herskipa frá Kína, Frakklandi, Japan, Suður-Kóreu og Bretlandi til að tryggja olíuflutninga um Hormússund. Bandarískir fjölmiðlar segja fimm þúsund bandaríska hermenn á leið til Mið-Austurlanda með herskipum. Kenningar eru uppi um að þeir eigi að ná yfirráðum yfir Kharg-eyju. Bandaríkjaher gerði loftárásir á eyjuna í gær, þaðan er nærri öll olía og allt gas flutt frá Íran. Stjórnvöld þar segja að útflutningur hafi verið með hefðbundnum hætti í dag þrátt fyrir árásir gærdagsins. Íranar hafa haldið áfram árásum á Ísrael í dag, sem og á bandarísk skotmörk í öðrum nágrannalöndum sínum. Árás var meðal annars gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Bagdad í Írak. Þá hafa írönsk stjórnvöld hótað því að beina spjótum sínum að bandarískum fyrirtækjum í Mið-Austurlöndum, haldi Bandaríkin áfram árásum á orkuinnviði Írans.
This article describes a kinetic military attack, not a software vulnerability; the threat is Iranian drone strikes targeting critical energy infrastructure in the Middle East. The attack vector is physical, targeting a major oil storage facility in Fujairah, UAE, with the potential to disrupt global oil supply chains. In response, the U.S. is mobilizing military reinforcements and calling for international naval support to secure the Strait of Hormuz.