Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Íranar segja Hormússund lokað árásarþjóðum en opið öðrum

  • What: Iran says Strait of Hormuz is open to non-Iranian ships but closed to those attacking Iran
  • Impact: International oil shipping routes remain a geopolitical concern
Read Full Article →

Íranar eru tilbúnir að aðstoða japönsk skip til að sigla um Hormússund, sagði íranski utanríkisráðherrann Abbas Araghchi í viðtali sem japanski fjölmiðillinn Kyodo News birti í morgun. Siglingar um Hormússund hafa að mestu legið niðri síðan átökin brutust út í Mið-Austurlöndum. Araghchi hélt því þó fram í viðtalinu að sundinu hefði ekki verið lokað. Því hefði aðeins verið lokað þeim þjóðum sem réðust á Írana en að öðrum þjóðum yrði boðin aðstoð til að flytja olíu um sundið. Japanar reiða sig mjög á olíu frá Mið-Austurlöndum og eru fimmti mesti olíuinnflytjandi heims. 70% af olíunni fer um Hormússund. Japönsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau muni byrja losun á varaeldsneytisforða Japans á mánudaginn. Varaforðinn jafngildir neyslu innanlands í Japan í 254 daga.

Share this article