- What: Discussion on digital sovereignty in Ukraine
- Impact: Ukrainian government and international relations
Innlent | mbl | 14.3.2026 | 19:36 Skiptir máli fyrir þjóðaröryggi og frið Nelli Blinova, yfirmaður alþjóðlegra samstarfsverkefna á sviði gervigreindar innan ráðuneytis stafrænnar umbreytingar í Úkraínu, fór með erindi í HR á föstudaginn. Ljósmynd/Háskólinn í Reykjavík Setja bókamerki Hvernig getur land sem er í miðjum stríðsátökum á sama tíma verið eitt metnaðarfyllsta ríki Evrópu er kemur að þróun gervigreindar? Því svarar Nelli Blinova, yfirmaður alþjóðlegra samstarfsverkefna á sviði gervigreindar innan ráðuneytis stafrænnar umbreytingar í Úkraínu, í samtali við mbl.is. „Úkraína er að þróast úr stafrænu ríki“ Blinova var aðalfyrirlesari á gervigreindarráðstefnunni AI and Society: You, Data, and Sovereign Decision-Making , sem fór fram í Háskólanum í Reykjavík í gær. Í samtali við mbl.is segir hún þróun gervigreindar ekki einungis skipta sköpum fyrir framtíð Úkraínu út frá tæknilegum sjónarhóli heldur einnig fyrir þjóðaröryggi og frið. „Í erindi mínu fjallaði ég um gervigreind og hvernig Úkraína er að þróast úr stafrænu ríki yfir í svokallað „agentic“ ríki, þar sem gervigreind gegnir lykilhlutverki í opinberri þjónustu,“ segir Blinova um erindi sitt í upphafi samtalsins við blaðamann mbl.is. Vilja vera á meðal fremstu ríkja Hún segir markmið stjórnvalda í Úkraínu vera að ríkið sé á meðal fremstu ríkja heims er kemur að þróun og innleiðingu gervigreindar í opinbera geiranum fyrir árið 2030. Að sögn Blinovu hefur þróun gervigreindarinnar verið hröð innan Úkraínu, þá sérstaklega frá stofnun gervigreinarmiðstöðvarinnar WinWin AI Center of Excellence, en innan hennar hafa t.a.m. verið þróuð 14 verkefni sem auka skilvirkni innan ráðuneytis stafrænnar umbreytingar m.a. er kemur að lagalegri vinnslu skjala og starfsmannamálum. Hönnuðu spjallmenni sem gerir þjónustu aðgengilegri Helsta verkefni ráðuneytisins er netvafrinn Diia sem inniheldur gervigreindarspjallmennið Diia AI, svokallaðan landsbundinn stafrænan aðstoðarmann sem getur veitt opinbera þjónustu í gegnum spjallkerfi og á að einfalda samskipti borgara við stjórnvöld og gera þjónustu aðgengilegri. Þá nefnir Blinova að nú þegar sé Diia notað af 24 milljónum manna. „Í stuttu máli má segja að mikil umbreyting sé að eiga sér stað á sviði gervigreindar í Úkraínu. Landið er smám saman að þróast í svokallað „AI-native state“.“ „Við búum yfir pólitískum vilja“ Þegar Blinova er spurð hvernig land í miðjum stríðsátökum geti orðið eitt metnaðarfyllsta ríki Evrópu í þróun gervigreindar segir hún að stafræna þróunin hafi þegar verið hafin áður en Rússland gerði innrás í Úkraínu og að þar hafi verið hröð þróun er kemur að nýsköpun og tækni. Í raun hafi innrás Rússa gert það að verkum að sú þróun hafi orðið hraðari þar sem forysta í gervigreindarþróun hafi ekki lengur einungis verið undir heldur einnig þjóðaröryggi Úkraínu. „Við búum yfir pólitískum vilja, við höfum snjalla hugsuði og við höfum mikinn metnað. Við trúum því að gervigreind geti gjörbreytt lífi okkar til hins betra, tryggt efnahagslegan vöxt – þar sem verg landsframleiðsla okkar hefur dregist verulega saman – og tryggt frið með nýrri tækni í vörnum okkar.“ „Í erindi mínu fjallaði ég um gervigreind og hvernig Úkraína er að þróast úr stafrænu ríki yfir í svokallað „agentic“ ríki, þar sem gervigreind gegnir lykilhlutverki í opinberri þjónustu.“ Ljósmynd/Háskólinn í Reykjavík Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Nú búa yfir 250 þúsund á höfuðborgarsvæðinu Nýr listi býður fram í Árneshreppi Skiptir máli fyrir þjóðaröryggi og frið Anthony Gordon skákaði Chelsea á Brúnni Sextán ára skoraði og tíu stiga forskot Arsenal Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir Pútín hjálpa Írönum „dálítið“ Fólkinu hefur verið bjargað af jöklinum Mest lesið Í gær Í vikunni Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Hjálmar H. Ragnarsson látinn Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Nýjast á mbl.is » Nú búa yfir 250 þúsund á höfuðborgarsvæðinu Nýr listi býður fram í Árneshreppi Skiptir máli fyrir þjóðaröryggi og frið Anthony Gordon skákaði Chelsea á Brúnni Sextán ára skoraði og tíu stiga forskot Arsenal Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Segir verðmiðann slá sig sem háan Ekki hægt að segja nei við þessi augu! Langvinn skjálftahrina suðaustan við Bárðarbungu Mest lesið Í gær Í vikunni Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Hjálmar H. Ragnarsson látinn Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar