Isavia hefur lokað öllum þremur verslunum Rammagerðarinnar í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Rammagerðin hefur starfað í flugstöðinni í rúm fimmtíu ár. Störf hátt í þrjátíu einstaklinga eru nú í húfi. „Starfsfólki okkar í Leifsstöð var verulega brugðið þegar Isavia kom og lokaði. Aðgerðin olli hræðslu meðal starfsfólks enda er þetta alvarleg og ólögleg aðgerð,“ segir Lydía Kims framkvæmdastjóri Rammagerðarinnar. Lydía segir í tilkynningu að Rammagerðin hafi fengið samþykkt greiðsluskjól hjá Héraðsdómi Reykjaness og því séu aðgerðir Isavia ólöglegar. Undanfarna mánuði hafa átt sér stað viðræður milli Rammagerðarinnar og Isavia um rekstrarforsendur leigusamnings í flugstöðinni. „Ágreiningurinn snýr að því að verslanir voru afhentar níu mánuðum eftir upphaf samnings, án afsláttar af leigu, auk þess sem Isavia hefur ekki tekið tillit til verulegs samdráttar í farþegafjölda og brotthvarfs flugfélaga. Þrátt fyrir að forsendur samningsins séu brostnar hefur Isavia hafnað samningsbundnu endurmati.“ Segir í tilkynningu frá Lydíu Kims. 30 störf í húfi Óvissa ríkir nú um framhald þrjátíu starfsmanna, í tilkynningu Lydíu segir að verði verslanirnar áfram lokaðar muni Rammagerðin leita atbeina stjórnvalda, mikið sé í húfi fyrir íslenska hönnun. „Það er sem Isavia telji sig ofar lögum“ Verslanir Rammagerðarinnar hafa verið einn helsti vettvangur fyrir kynningu á íslenskri hönnun og handverki í Leifsstöð. Í tilkynningu segir að með aðgerðum Isavia sé verið að loka fyrir vörusölu yfir 150 íslenskra hönnuða og frumkvöðla sem selja vörur sínar í verslunum Rammagerðarinnar. Rammagerðin rekur verslanir á þremur stöðum í miðbæ Reykjavíkur og þrjár verslanir í Leifsstöð; fyrirtækið hefur verið starfandi frá árinu 1940.