- What: Dispute between Rammagerðin and Isavia over store closures
- Impact: No direct security impact
Innlent | mbl | 15.3.2026 | 15:11 Segja Rammagerðina fara með rangfærslur Rammagerðin og Isavia eru ekki sammála um málavexti. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Isavia segir Rammagerðina hafa farið með rangfærslur í fjölmiðlum varðandi lokun þriggja verslana búðarinnar í Leifsstöð í gærnótt. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Sveinbirni Indriðasyni, forstjóra Isavia, til fjölmiðla. Rammagerðin sendi frá sér tilkynningu til fjölmiðla í gær þar sem greint var frá því að öllum þremur verslunum Rammagerðarinnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefði verið lokað þrátt fyrir að Rammagerðin hefði fengið samþykkt greiðsluskjól hjá Héraðsdómi Reykjaness. Verslunin var ósátt með framgöngu Isavia í málinu og taldi hana ekki vera samkvæmt lögum. Knúin til að tjá sig vegna ummælanna „Við á Keflavíkurflugvelli tjáum okkur almennt ekki um málefni einstakra viðskiptafélaga og leggjum áherslu á að vinna með þeim að úrlausn mála á grundvelli gagnkvæms trausts. Því miður eru ummæli forsvarsfólks Rammagerðarinnar í fjölmiðlum þess eðlis að við sjáum okkur knúin til að bregðast við þeim og koma á framfæri réttum upplýsingum,“ segir í yfirlýsingu Sveinbjörns. „Á milli Isavia og Rammagerðarinnar var í gildi rekstrarleyfissamningur um rekstur gjafavöruverslunar í flugstöð Keflavíkurflugvallar. Samningurinn var gerður í kjölfar útboðs sem fram fór árið 2023. Í því lagði Rammagerðin fram hagstæðara tilboð en aðrir bjóðendur. Með samningnum skuldbatt Rammagerðin sig til þess að greiða leigu í samræmi við tilboð sitt sem var algerlega sett fram á þeirra eigin forsendum og var þeirra ákvörðun.“ Frétt af mbl.is Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Segja lokunina hafa verið með aðdraganda Þá segir Sveinbjörn að unnið hafi verið samkvæmt þessum samningi og hafa öll mál sem upp hafa komið verið leyst farsællega með gagnkvæmu samkomulagi þar til nú. Þann 3. mars hafi Rammagerðinni verið birt greiðsluáskorun vegna vanskila með vísan til samningsins og í samræmi við húsaleigulög. Þann 10. mars hafi Isavia rift samningnum við Rammagerðina vegna vanefnda af hálfu hennar, og hafi það ekki verið án aðdraganda. „Vanskil Rammagerðarinnar voru ekki nýtilkomin. Það kom þó ekki í veg fyrir það að við hjá Isavia unnum hörðum höndum fram á síðustu mínútu að finna leiðir til að Rammagerðin, okkar viðskiptafélag, gæti haldið áfram starfsemi sinni á Keflavíkurflugvelli en á sama tíma uppfyllt þær skyldur sem lög, sérleyfisreglugerðin og opinbert eignarhald setur Isavia. Því miður tókst forsvarsfólki Rammagerðarinnar ekki að leysa úr sínum málum,“ segir í yfirlýsingu Sveinbjörns. Þeirra eigin ákvarðanir hafi leitt til þessa „Í lok dags, föstudaginn 13. mars, barst okkur síðan tilkynning um að Rammagerðin hefði óskað eftir heimild til greiðslustöðvunar eftir að samningnum var rift. Því miður er það ekki bara Isavia sem verður fyrir tjóni heldur fjöldinn allur af aðilum, þar á meðal frábærir íslenskir hönnuðir og handverksfólk, sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að framleiðslu á þeim gæðavörum sem Rammagerðin hefur haft til sölu í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli.“ „Okkur þykir miður að forsvarsfólk Rammagerðarinnar hafi farið með rangfærslur í fjölmiðlum en auðvitað er það þannig að staðan sem nú er upp komin er vegna þeirra ákvarðana sem þau hafa tekið sjálf í sínum rekstri til þessa,“ segir að lokum í yfirlýsingunni. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Man. Utd - Aston Villa, staðan er 1:1 Svekkjandi tap hjá Rúnari Segja Rammagerðina fara með rangfærslur Mikael spilaði allan leikinn í sigri Beita leysigeislabyssum á lúsina í Djúpinu Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Yfir eitt þúsund árásir á dag Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir Pútín hjálpa Írönum „dálítið“ Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Drukknir menn reikuðu um gólfið „Hélt ég væri game over“ Unnið við lúxushótel á ný Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Varðskipið Þór í viðbragðsstöðu í Ísafjarðardjúpi Snjóflóð féllu í Ólafsfirði, Súgandafirði og á Flateyri Maður með hníf á lofti yfirbugaður og handtekinn Ferðalangar víða í vandræðum vegna færðar Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Nýjast á mbl.is » Man. Utd - Aston Villa, staðan er 1:1 Svekkjandi tap hjá Rúnari Segja Rammagerðina fara með rangfærslur Mikael spilaði allan leikinn í sigri Beita leysigeislabyssum á lúsina í Djúpinu Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kvartað undan rukkunum Isavia Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Vöruflutningabílar illa búnir á þjóðveginum Í svaðilför þvert yfir Suðurskautslandið Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Drukknir menn reikuðu um gólfið „Hélt ég væri game over“ Unnið við lúxushótel á ný Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Varðskipið Þór í viðbragðsstöðu í Ísafjarðardjúpi Snjóflóð féllu í Ólafsfirði, Súgandafirði og á Flateyri Maður með hníf á lofti yfirbugaður og handtekinn Ferðalangar víða í vandræðum vegna færðar Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu