Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Netflix vill ekki jafna tilboð Paramount í Warner Bros.

  • What: Netflix withdraws bid for Warner Bros. Discovery
  • Impact: Changes in media industry landscape
Read Full Article →

Streymisveitan Netflix hefur fallið frá tilboði sínu um kaup á kvikmynda- og sjónvarpsframleiðandanum Warner Bros. Discovery. Líklegt þykir að Paramount Skydance eignist fyrirtækið verði kaupin samþykkt af yfirvöldum. Samkvæmisleik Netflix og Paramount, um hvort þeirra kaupi Warner Bros. síðustu mánuði, virðist vera lokið. Netflix tilkynnti í gær að það ætlaði að falla frá tilboði sínu eftir að Paramount hækkaði sitt tilboð upp í 111 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði um 13.800 milljarða íslenskra króna. Warner Bros hafnaði yfirtökutilboði Paramount um miðjan desember og þótti þá líklegt að Netflix eignaðist fyrirtækið. Stjórnendur Netflix vildu hins vegar ekki jafna tilboð Paramount og sögðu að það væri ekki lengur fjárhagslega aðlaðandi að kaupa fyrirtækið á því verði, eins og þeir orðuðu það í tilkynningu. Með kaupum á Warner Bros. fylgir meðal annars yfirgripsmikið kvikmyndasafn, streymisveitan HBO og önnur fjölmiðlafyrirtæki. Yfirtakan gæti gjörbreytt fjölmiðlalandslaginu í Bandaríkjunum verði hún samþykkt af yfirvöldum.

Share this article