Security News

Cybersecurity news aggregator

🤝
INFO News Viðskiptablaðið

atNorth selt á 485 milljarða

  • What: Equinix and CPPIB acquire atNorth, Iceland's largest data center company
  • Impact: No direct impact on regular users
Read Full Article →

Bandaríski gagna­vers­risinn Equ­inix og kana­díski líf­eyris­sjóðurinn Canada Pension Plan Invest­ment Board (CPPIB) hafa gengið frá kaupum atNorth Holding AB. atNorth er stærsta gagna­vers­fyrir­tæki landsins og rekur gagna­ver á Akur­eyri, í Reykja­nes­bæ og í Hafnarfirði. Félagið hefur stækkað hratt á undan­förnum árum, bæði hér heima og ekki síður á hinum Norður­löndunum, sem hefur kallað á miklar fjár­festingar. Fyrirtækið er með höfuðstöðvar á Ís­landi og rekur gagna­ver á Ís­landi, í Dan­mörku, Svíþjóð og Finn­landi. Sam­kvæmt til­kynningu atNorth er heildar­virði við­skiptanna (enterprise valu­e) um 4 milljarðar Bandaríkja­dala, en kaupin eru háð hefðbundnum skil­yrðum, þar á meðal samþykki eftir­lit­saðila. Þar kemur fram að CPP Invest­ments eiga um 60% ráðandi hlut í atNorth, en Equ­inix um 40% en atNorth mun halda starf­semi sinni áfram undir eigin vöru­merki og með óbreyttri áherslu á hraða upp­byggingu á Norður­löndum, þar sem eftir­spurn eftir gagna­versinn­viðum vex hratt vegna gervi­greindar og stórra skýja­lausna. For­stjóri atNorth, Eyjólfur Magnús Kristins­son, segir samninginn stað­festa stöðu félagsins og mikilvægi Norður­landa í stafrænum inn­viðum Evrópu. „Þessi kaup eru öflug stað­festing á veg­ferð atNorth og stöðu félagsins sem leiðandi gagna­ver­s­vett­vangs á Norður­löndum. Þau undir­strika jafn­framt stra­tegískt mikilvægi svæðisins sem vaxandi miðju gervi­greindar­upp­byggingar í Evrópu. Ég er afar stoltur að geta kynnt næsta kafla í sögu okkar og tekið á móti þessari fjár­festingu frá CPP Invest­ments og Equ­inix. Hún mun veita okkur að­gang að fjár­magni, alþjóð­legum tengslum við stór­fyrir­tæki og risastóra skýja­við­skipta­vini, auk þess styrks í að­fanga­keðju sem þarf til að stækka hratt. Stefna okkar er áfram rót­gróin á Norður­löndum og við munum halda áfram að starfa sjálf­stætt undir vöru­merki atNorth, með óbreyttri hollustu við þau sam­félög sem við störfum í og þau gildi og þá menningu sem hafa mótað árangur okkar til þessa,“ segir Eyjólfur. Í til­kynningunni kemur fram að CPP Invest­ments og Equ­inix hafi fengið samþykkt til bráða­birgða 4,2 milljarða dala fjár­mögnunar­pakka sem er tryggður af hópi evrópskra og kana­dískra lán­veit­enda. Þá er greint frá því að atNorth rekur átta gagna­ver og er með fleiri svæði í þróun víða á Norður­löndu Fyrir­tækið hefur tryggt sér 1 gíga­vatt (GW) af raf­afli til upp­byggingar og hefur að auki áform um frekari framtíðar­getu. Í til­kynningu frá Equ­inix er sér­stak­lega tekið fram að gagna­vera­svæði atNorth falli vel að tengi- og sam­tengingarþjónustu Equ­inix og alþjóð­legu um­fangi félagsins. Með sam­runanum telja aðilar að þeir geti styrkt stöðu sína gagn­vart við­skipta­vinum sem vilja byggja upp stafræna inn­viði á Norður­löndum, meðal annars með áherslu á seiglu, reglu­um­hverfi og gagna­sjál­fræði. „Þessi samningur byggir á lang­varandi og afar árangurs­ríku sam­starfi okkar við Equ­inix,“ sagði Maximili­an Bia­gosch, yfir­maður raun­fjár­festinga hjá CPP Invest­ments. „Hann sýnir þá sann­færingu og skuld­bindingu sem við höfum gagn­vart gagna­vera­geiranum, þar sem eftir­spurn heldur áfram að aukast – knúin áfram af áfram­haldandi sterkri eftir­spurn fyrir­tækja og vaxandi notkun skýja­lausna og gervi­greindar. Norður­lönd eru aðlaðandi markaður fyrir vöxt gagna­vera og tækifærið til að vinna með Equ­inix að þessum kaupum gerir okkur kleift að ráð­stafa veru­legu fjár­magni inn á sterkan og vandaðan vett­vang. Það styður við mark­mið okkar um að skila CPP-sjóðfélögum og líf­eyrisþegum góðri ávöxtun miðað við áhættu.“

Share this article