- What: Hotel Laki sold to Cabin
- Impact: Changes in hotel ownership and operations
Cabin ehf. hefur gengið frá kaupum á Hótel Laka við Kirkjubæjarklaustur. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu þar sem segir að með kaupunum bætist öflugt og rótgróið hótel við rekstur félagsins sem rekur fyrir Hótel Cabin, Hótel Örk og Hótel Klett. Þá standi yfir undirbúningur að opnun Moxy Reykjavík, sem áætlað sé að opni árið 2028. Hótel Laki sé afar vel staðsett á Suðurlandi og hafi um árabil verið vinsælt hótel fyrir bæði innlenda og erlenda ferðamenn. Hótelið njóti góðs orðspors fyrir vandaða þjónustu, notalegt umhverfi og einstaka nálægð við helstu náttúruperlur svæðisins. Þaðan sé einstakt útsýni enda staðsetningin á milli jökla og eldfjalla. Sjá einnig Hótel Laki í söluferli „Við erum afar ánægð með að Hótel Laki bætist í hóp okkar hótela. Hótelið er frábær viðbót við reksturinn og fellur vel að þeirri framtíðarsýn okkar að byggja upp öflugt safn hótela á Íslandi, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni,“ segir Jóhann Sigurðsson framkvæmdarstjóri Cabin ehf. „Við hjónin og fjölskyldan, sem höfum byggt upp þennan rekstur frá árinu 1973, erum afar stolt af því að geta afhent keflið nýjum aðila sem hyggst halda starfinu áfram af fagmennsku og metnaði“ segja Hörður Davíðsson og Salóme Ragnarsdóttir, stofnendur Hótel Laka. Í fréttatilkynningunni segir að með kaupunum styrki Cabin enn frekar stöðu sína á íslenskum hótelmarkaði og auki viðveru sína á Suðurlandi, sem sé eitt vinsælasta ferðamannasvæði landsins. Áhersla verði lögð á að byggja áfram á sterkum grunni Hótel Laka, viðhalda þeim gæðum sem þar hafi einkennt reksturinn og skapa frekari tækifæri til vaxtar. Rekstur hótelsins muni halda áfram með óbreyttum hætti, en ráðist verði í nauðsynlegar endurbætur og jafnframt skoðaðir möguleikar á frekari uppbyggingu. Áfram verði lögð áhersla á gott samstarf við starfsfólk, viðskiptavini og nærsamfélagið. Áætlað er að afhending eigi sér stað eigi síðar en 1. maí. Gert er ráð fyrir að viðskiptin taki gildi að uppfylltum fyrirvörum, þar á meðal samþykki samkeppnisyfirvalda. Ráðgjafar seljenda í viðskiptunum voru KPMG. Þá voru ráðgjafar kaupanda Civitas og LEX.