Security News

Cybersecurity news aggregator

🤝
INFO News Viðskiptablaðið

Uber kaupir einkabílstjórafyrirtækið Blacklane

  • What: Uber acquires Blacklane
  • Impact: Business merger, not related to cybersecurity
Read Full Article →

Bandaríska leigubílaþjónustan Uber hefur náð samkomulagi um kaup á þýska bílaþjónustufyrirtækinu Blacklane. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu Uber hyggst fyrirtækið styrkja stöðu sína á lúxusbílamarkaði. Blacklane var stofnað í Berlín árið 2011 og tengir saman viðskiptavini við sjálfstæða bílstjóra í gegnum smáforrit og bókunarkerfi. Fyrirtækið er með starfsemi í fleiri en 500 borgum í meira en 60 löndum. Kaupin eru háð samþykki eftirlitsaðila en ef allt gengur samkvæmt áætlun má gera ráð fyrir því að kaupin fari í gegn fyrir árslok 2026. Samkvæmt Uber hefur lúxusbílamarkaðurinn vaxið töluvert innan geirans en lúxusþjónusta fyrirtækisins, Uber Reserve, hefur til að mynda vaxið hratt og er orðin mikilvægur hluti af kjarnastarfsemi leigubílaþjónustunnar.

Share this article