Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Rammagerðin beri ábyrgð á stöðunni sem upp er komin

Read Full Article →

Forstjóri Isavia segir miður að forsvarsfólk Rammagerðarinnar hafi farið fram með rangfærslur í fjölmiðlum varðandi lokun verslana þeirra á Keflavíkurflugvelli um helgina. Isavia hafi unnið hörðum höndum að því að finna lausn svo Rammagerðin gæti haldið starfseminni áfram. Staðan sem uppi sé komin sé vegna þeirra ákvarðana sem Rammagerðin hafi tekið sjálf í sínum rekstri. Aðgerðir Isavia valdið hræðslu meðal starfsfólks Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, hefur svarað gagnrýni Lydíu Kims, framkvæmdastjóra Rammagerðarinnar, um lokun þriggja verslana þeirra á Keflavíkurflugvelli um helgina. Lydía segir að starfsfólki hafi verið verulega brugðið þegar starfsmenn Isavia lokuðu verslununum. Aðgerðin hafi valdið mikilli hræðslu meðal starfsfólks. Undanfarna mánuði hafi átt sér stað viðræður milli Rammagerðarinnar og Isavia um rekstrarforsendur leigusamnings í flugstöðinni. Lydía segir Rammagerðina hafa fengið samþykkt greiðsluskjól hjá Héraðsdómi Reykjaness og því séu aðgerðir Isavia ólöglegar. „Ágreiningurinn snýr að því að verslanir voru afhentar níu mánuðum eftir upphaf samnings, án afsláttar af leigu, auk þess sem Isavia hefur ekki tekið tillit til verulegs samdráttar í farþegafjölda og brotthvarfs flugfélaga. Þrátt fyrir að forsendur samningsins séu brostnar hefur Isavia hafnað samningsbundnu endurmati,“ segir Lydía. Sjá sig knúna til að bregðast við ummælum Rammagerðarinnar Í tilkynningu frá Sveinbirni Indriðasyni, forstjóra Isavia, segir að forsvarsmenn sjái sig knúna til að bregðast við ummælum Rammagerðarinnar í fjölmiðlum og koma á framfæri réttum upplýsingum. Almennt tjái fyrirtækið sig ekki um málefni einstakra viðskiptafélaga. Sveinbjörn rekur sögu rekstarleyfissamnings milli Isavia og Rammagerðarinnar, sem var gerður í kjölfar útboðs árið 2023. Hann segir að Rammagerðin hafi lagt fram hagstæðara tilboð en aðrir bjóðendur - og með samningnum hafi fyrirtækið skuldbundið sig til þess að greiða leigu í samræmi við tilboðið. „Sem var algjörlega sett fram á þeirra eigin forsendum og var þeirra ákvörðun,“ segir Sveinbjörn. Unnið hafi verið samkvæmt samningnum og öll mál sem hafi komið upp hafi verið leyst farsællega með gagnkvæmu samkomulagi - þar til nú. Óskuðu eftir greiðslustöðvun eftir að leigusamningi var rift Sveinbjörn segir að þann 3. mars hafi Rammagerðinni verið birt greiðsluáskorun vegna vanskila, með vísan til samningsins og í samræmi við húsaleigulög. Viku síðar, 10. mars, hafi Isavia rift samningnum við Rammagerðina vegna vanefnda af þeirra hálfu, sem hafi ekki verið án aðdraganda. „Vanskil Rammagerðarinnar voru ekki nýtilkomin. Það kom þó ekki í veg fyrir það að við hjá Isavia unnum hörðum höndum fram á síðustu mínútu að finna leiðir til að Rammagerðin, okkar viðskiptafélagi, gæti haldið áfram starfsemi sinni á Keflavíkurflugvelli en á sama tíma uppfyllt þær skyldur sem lög, sérleyfisreglugerðin og opinbert eignarhald setur Isavia,“ segir Sveinbjörn. „Því miður tókst forsvarsfólki Rammagerðarinnar ekki að leysa úr sínum málum.“ Isavia hafi í lok dags 13. mars borist tilkynning um að Rammagerðin hafi óskað eftir heimild til greiðslustöðvunar, eftir að samningnum var rift. „ Því miður er það ekki bara Isavia sem verður fyrir tjóni heldur fjöldinn allur af aðilum, þar á meðal frábærir íslenskir hönnuðir og handverksfólk, sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að framleiðslu á þeim gæðavörum sem Rammagerðin hefur haft til sölu í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli,“ segir Sveinbjörn. „Okkur þykir miður að forsvarsfólk Rammagerðarinnar hafi farið með rangfærslur í fjölmiðlum en auðvitað er það þannig að staðan sem nú er upp komin er vegna þeirra ákvarðana sem þau hafa tekið sjálf í sínum rekstri til þessa.“

Share this article