Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Margt jákvætt en ekki ráðist að rót vandans í fjölmiðlafrumvarpi

Read Full Article →

Tólf útgáfufélög, Blaðamannafélag Íslands og Öryrkjabandalag Íslands hafa skilað umsögnum um frumvarp til breytinga á lögum um fjölmiðla. Flestir eru sammála um að meira þurfi til að styrkja stöðu einkarekinna fjölmiðla. Umsagnarfrestur í samráðsgátt rennur út í dag. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra kynnti aðgerðaáætlun til að styrkja stöðu einkarekinna fjölmiðla í desember. Meðal breytinga er að fjölmiðlar sem uppfylla skilyrði um fréttaþjónustu í almannaþágu á landsvísu geta sótt um aukastyrk. Þá mun hluti auglýsingatekna RÚV renna til einkarekinna fjölmiðla samkvæmt áætlun ráðherra. Frumvarp var birt í samráðsgátt í lok febrúar og í dag rennur umsagnarfrestur út. Auk Blaðamannafélagsins hafa útgefendur Morgunblaðsins, DV, Viðskiptablaðsins, Grapevine og Lifandi vísinda skilað umsögn. Þá skiluðu útgefendur Austurgluggans, Skessuhorns, Víkurfrétta, Eyjafrétta, Akureyri.net og Vikublaðsins sameiginlegri umsögn. Vikið verður að umsögn ÖBÍ neðar í fréttinni. Flestir sem skila umsögn eru sammála um að jákvætt sé að festa fjölmiðlastyrki í sessi til lengri tíma og að úthlutun verði fyrr á árinu. Hins vegar finnst mörgum að styrkurinn ætti að nema hærra hlutfalli af rekstrarkostnaði. Þá sé fréttaþjónusta í almannaþágu ekki nógu vel skilgreind, og ákvæðið hampi stærri fjölmiðlum á kostnað smærri. Ekki ráðist á rót vandans og vonbrigði fyrir landsbyggðarmiðla Í sameiginlegri umsögn svæðismiðlanna er vonbrigðum lýst með að ekki sé gert meira til að koma til móts við þrönga stöðu einkarekinna fjölmiðla á landsbyggðinni. Í umsögnum útgefenda Grapevine og Lifandi vísinda er krafa um fjölda útgáfa á prenti gagnrýnd, en miðlar sem gefnir eru út á prenti í Reykjavík þurfa að koma út 20 sinnum á ári til að vera styrkhæfir samkvæmt frumvarpinu. Í umsögnum nokkurra útgáfufélaga kemur fram að fjölmiðlafrumvarpið ráðist ekki á rót rekstrarvanda einkarekinna fjölmiðla, sem sé ráðandi staða Ríkisútvarpsins á markaði. Blaðamannafélagið hvetur stjórnvöld til að hraða framkvæmd annarra þátta í aðgerðaráætlun stjórnvalda í málefnum fjölmiðla. Hvorki Sýn né útgáfufélag Heimildarinnar höfðu skilað umsögn um frumvarpið þegar þessi frétt var rituð. Frumvarpið festi í sessi mismunun í aðgengi að upplýsingum Í umsögn Öryrkjabandalags Íslands segir að ótækt sé að íslenska ríkið fjármagni framleiðslu efnis sem ekki er aðgengilegt fyrir stóran hóp fatlaðs fólks og festi þannig í sessi mismunun í aðgengi að upplýsingum. Bandalagið hafi skilað inn fjórum umsögnum síðan fyrstu tillögur um ríkisstyrki til einkarekinna fjölmiðla komu fram og ekkert tillit hafi verið tekið til þeirra.

Share this article