Ríkisútvarpið tók til sín nærri 29% af öllum fjölmiðlatekjum á Íslandi á árinu 2024, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Af heildartekjum fjölmiðla, sem námu 30,3 milljörðum króna, runnu tæpir 8,7 milljarðar til RÚV. Hlutdeildin jókst um tvö prósentustig milli ára, úr 27% í 29%, sem þýðir að nærri þrjár af hverjum tíu krónum sem runnu til fjölmiðla í landinu enduðu hjá ríkismiðlinum. Með um 41% af tekjum á útvarps- og sjónvarpsmarkaði Þessi staða dregur skýrt fram sterka stöðu RÚV og ríkisins á íslenskum fjölmiðlamarkaði á sama tíma og heildartekjur greinarinnar drógust saman. Fjölmiðlatekjur lækkuðu um 3% milli ára á föstu verðlagi og námu alls 30,3 milljörðum króna. Þar af voru notendatekjur tæpir 18,7 milljarðar króna og auglýsingatekjur 11,6 milljarðar. Samdráttinn rekur Hagstofan meðal annars til 4% minnkandi notendatekna og 2% samdráttar í auglýsingatekjum. Þegar nánar er rýnt í stöðu RÚV kemur fram að félagið styrkti stöðu sína sérstaklega á útvarpsmarkaði í víðum skilningi, það er í hljóðvarpi og sjónvarpi samanlagt. Tekjuhlutdeild RÚV þar jókst í 41% árið 2024. Aukningin kom öll fram í sjónvarpi, þar sem hlutur RÚV fór úr 32% í 34%, en í hljóðvarpi stóð hlutdeildin í stað í 64%. Sé horft til lengri tíma hefur vægi RÚV á fjölmiðlamarkaði aukist enn frekar. Árið 2010 var hlutdeild félagsins í heildartekjum fjölmiðla 24%, en var komin í 29% árið 2024. Hagstofan segir aukninguna fremur skýrast af vaxandi notendatekjum en auglýsingum. Hlutfall RÚV í notendatekjum fjölmiðla hækkaði þannig úr 28% í 33% á tímabilinu, en hlutdeild þess í auglýsingatekjum fór úr 19% í 22%. Tölurnar sýna jafnframt mjög samþjappaðan fjölmiðlamarkað. Samkvæmt Hagstofunni runnu 88% allra fjölmiðlatekna árið 2024 til fimm rekstraraðila, að RÚV meðtöldu. Þegar aðeins er horft til einkarekinna miðla runnu 85% samanlagðra tekna til fimm stærstu aðilanna. Breytingar á fjölmiðlaneyslu endurspeglast einnig í tekjuskiptingunni. Sjónvarp tók til sín 55% allra fjölmiðlatekna á síðasta ári og hljóðvarp 15%, á meðan dag- og vikublöð og vefmiðlar voru hvort um sig með 12% hlutdeild. Hlutur tekna frá notendum hefur vaxið á undanförnum árum, en hlutur auglýsinga dregist saman.