Afkoma Ríkisútvarpsins (RÚV) var jákvæð um 14 milljónir króna á árinu 2025, samanborið við 188 milljóna tap árið áður, samkvæmt fundargerð stjórnarfundar sem fór fram 20. mars. Eigið fé Ríkisútvarpsins í árslok 2025 nam 1.636 milljónum króna. Eiginfjárhlutfallið var 16,3% í árslok 2025 og lækkaði um 1,1% milli ára. Frumvarp um „afléttingu“ láns eftir páska Skuldir RÚV í lok síðasta árs námu 8.399 milljónum króna og jukust um 154 milljónir króna milli ára þegar leiðrétt hefur verið fyrir fyrirframgreiddum tekjum. Langtímaskuldir jukust um 70 milljónir króna vegna verðlagshækkana umfram afborganir af verðtryggðum skuldum félagsins. Þá jukust aðrar fjárskuldir um 196 milljónir króna sem fyrst og fremst má rekja til aukningar í sýningarrétti á íþróttaefni. Sjá einnig 12% auglýsingatekna RÚV renni til annarra fjölmiðla Logi Einarsson menningarmálaráðherra kynnti í desember fyrirhugaðar aðgerðir á fjölmiðlamarkaði. Ein af þeim snýr að „afléttingu láns“ vegna eldri lífeyrisskuldbindinga RÚV. Í tilkynningu ráðuneytis hans í síðustu viku segir að unnið sé að því með fjármálaráðuneytinu að koma til móts við tekjutap RÚV vegna annarra aðgerða sem miða að því að takmarka umsvif ríkisfjölmiðilsins á samkeppnismarkaði, með því að aflétta láni vegna eldri lífeyrisskuldbindinga félagsins „eins og gert hefur verið hjá nær öllum opinberum aðilum og fyrirtækjum sem sinna opinberum rekstri“. Gert sé ráð fyrir að frumvarpið verði birt í samráðsgátt eftir páska. Lán frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR) vegna áfallinna lífeyrisskuldbindinga stóð í 3,8 milljörðum króna í árslok 2024 samkvæmt síðasta birta ársreikningi. Í téðri fundargerð RÚV segir er bent á að ekki sé gert ráð fyrir að aðgerðir stjórnvalda á fjölmiðlamarkaði taki gildi fyrr en í ársbyrjun 2027. Sjá einnig Stjórn RÚV vill að ríkið taki yfir 4 milljarða lán Rekstrartekjur Ríkisútvarpsins námu 9.389 milljónir króna og jukust um 240 milljónir milli ára eða 2,6%. Stjórnendur RÚV vöktu athygli á því að tekjurnar lækkuðu um 1,4% að raunvirði milli ára. Rekstrargjöld námu 9.020 milljónum króna og jukust um 48 milljónir milli ára eða 0,5%. Laun og launatengd gjöld námu 3.910 milljónum króna og jukust um 29 milljónir milli ára eða 0,7%. „Meðalfjöldi stöðugilda á árinu var 269 og fækkaði um sex á milli ára en unnið hafi verið að því frá miðju ári 2024 að draga úr launakostnaði til að bæta afkomu félagsins,“ segir í fundargerðinni.