Hagnaður Ríkisútvarpsins árið 2025 var 14 milljónir króna. Það er viðsnúningur um 200 milljónir frá árinu á undan þegar samstæðan tapaði 188 milljónum króna. Rekstrartekjur lækkuðu um 1% milli ára á föstu verði, en rekstrargjöld lækkuðu um 3,4%, Þetta kom fram í kynningu ársreiknings á ársfundi Ríkisútvarpsins í dag. Stefán Jón Hafstein, formaður stjórnar Ríkisútvarpsins, sagði að grípa gæti þurft til frekari aðhaldsaðgerða á þessu ári til að halda sjó. EBIDTA var 899 milljónir króna og batnaði um 213 milljónir milli ára. Launakostnaður Ríkisútvarpsins var 3,9 milljarðar króna , en stöðugildum fækkaði úr 275 að meðaltali í 269. Björn Þór Hermannsson fjármálastjóri sagði aðhaldssamt og krefjandi rekstrarár að baki og að tryggja þyrfti sjálfbærni í rekstri Ríkisútvarpsins. Stjórn RÚV var endurkjörin á fundinum. Hana skipa Stefán Jón Hafstein, formaður, Diljá Ámundadóttir Zöega, Heimir Már Pétursson, Kristín Sóley Björnsdóttir, Auður Finnbogadóttir, Ingvar Smári Birgisson, Eiríkur S. Svavarsson, Unnur Brá Konráðsdóttir og Silja Dögg Gunnarsdóttir. Anna María Benediktsdóttir er áheyrnarfulltrúi.