Innlent | mbl | 15.3.2026 | 23:10 „Við hljótum að geta gert betur“ „Við hjálpum þeim að finna vonina og að byggja upp líf sem þau upplifa að sé þess virði að lifa því. Við aðstoðum þau svo að komast í önnur úrræði, en það er erfitt þegar fáir ætla að taka þátt í því með okkur. Við hljótum að geta gert betur,“ segir Thelma. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Að meðaltali eru um fimmtán prósent nýrra skjólstæðinga hjá Píeta-samtökunum í hverjum mánuði með einhverfu. Fagstjóri samtakanna segir þeim skjólstæðingum oftar en ekki hafa verið hafnað af öðrum geðheilbrigðisþjónustum. Í þætti Kveiks á Ríkisútvarpinu á dögunum var varpað ljósi á erfiða stöðu einhverfra í samfélaginu, þar sem meðal annars var bent á að þeim sé jafnvel synjað um geðheilbrigðisþjónustu hérlendis. Frétt af mbl.is Enda á örorkubótum vegna álagsins 28 nýir skjólstæðingar á mánuði Í samtali við mbl.is segir Thelma Smáradóttir, fagstjóri og sálfræðingur hjá Píeta-samtökunum, marga einhverfa leita til samtakanna. „Það eru að meðaltali 28 nýir skjólstæðingar sem koma til okkar á mánuði og af þeim eru að meðaltali fjórir einhverfir, sem er þá 15% af nýjum skjólstæðingum. Þeir merkja við að þeir séu einhverfir en ég ætla að giska á að það séu fleiri af því að það eru svo margir sem haka ekki við þetta sem eru kannski ekki komnir með eigindlega greiningu því það er svo erfitt oft að fá hana,“ segir Thelma. Frétt af mbl.is „Við finnum að símtölin eru þung“ Frétt af mbl.is Lokun Janusar: „Þau tóku þessa ákvörðun sjálf“ Thelma Smáradóttir. mbl.is/Kristófer Liljar Erfitt að koma einhverfum áfram í önnur úrræði Í samtali við mbl.is í síðustu viku sagði framkvæmdastjóri Einhverfusamtakanna, Stefanía Hulda Marteinsdóttir, samtökin ítrekað hafa bent á að engin úrræði væru til staðar hérlendis fyrir einhverfa og þá sérstaklega í kjölfar þess að endurhæfingarstöðinni Janusi var lokað í fyrra. Aðspurð segir Thelma starfsmenn Píeta-samtakanna sömuleiðis hafa fundið fyrir því þegar Janusi var lokað. Erfitt hafi reynst síðan þá að koma einhverfum áfram í önnur úrræði. Frétt af mbl.is „Ráðherrar hljóta að bera ábyrgð“ Frétt af mbl.is „Það er sannarlega alltaf von“ „Við búum til einhverja von“ Hún segir skjólstæðingana þó ekki einungis leita til samtakanna vegna höfnunar annars staðar. Ýmsir þættir spili inn í vanlíðan einstaklinga og sjálfsvígshugsanir. Hins vegar hjálpi það ekki þegar fólk reyni að leita sér hjálpar en lendi á veggjum sökum einhverfu sinnar. Þá nefnir hún að Píeta-samtökin aðlagi meðferðir sínar að einhverfuröskun þeirra sem leita til samtakanna. „Við hjálpum þeim að finna vonina og að byggja upp líf sem þau upplifa að sé þess virði að lifa því. Við aðstoðum þau svo að komast í önnur úrræði, en það er erfitt þegar fáir ætla að taka þátt í því með okkur. Við hljótum að geta gert betur,“ segir Thelma. Embætti landlæknis bendir á að mikilvægt sé að þeir sem glíma við sjálfsvígshugsanir segi einhverjum frá líðan sinni, hvort sem er aðstandanda eða hafi samband við Hjálparsíma Rauða krossins 1717, eða á netspjalli 1717.is, við hjúkrunarfræðing í netspjalli á heilsuvera.is eða við ráðgjafa í síma Píeta-samtakanna s. 552-2218. Píeta-samtökin bjóða einnig upp á ráðgjöf og stuðning fyrir aðstandendur þeirra sem glíma við sjálfsvígshugsanir. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi bendir landlæknisembættið á stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöðinni í síma 551-4141 og hjá Píeta-samtökunum í síma 552-2218. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Árásir dynja á höfuðborg Líbanon „Við hljótum að geta gert betur“ Íransforseti fékk orð í eyra frá Macron Björgvin lítur mikið upp til Svíans Bendir á pólitískan ómöguleika Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Holtavörðuheiði lokað vegna umferðaslyss Hvessir á landinu í nótt Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segja Rammagerðina fara með rangfærslur Mest lesið Í gær Í vikunni Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“ Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Einn fær rúmar 800 þúsund Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Drukknir menn reikuðu um gólfið Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Nýjast á mbl.is » Árásir dynja á höfuðborg Líbanon „Við hljótum að geta gert betur“ Íransforseti fékk orð í eyra frá Macron Björgvin lítur mikið upp til Svíans Bendir á pólitískan ómöguleika Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Hvessir á landinu í nótt Segir verðmiðann slá sig sem háan Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Mest lesið Í gær Í vikunni Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“ Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Einn fær rúmar 800 þúsund Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Drukknir menn reikuðu um gólfið Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar