Innlent | mbl | 17.2.2026 | 20:00 „Við finnum að símtölin eru þung“ Sífellt fleiri leita til Píeta-samtakanna á hverju ári. Meirihlutinn er ungt fólk á aldrinum 18 til 30 ára. Þetta kemur fram í Dagmálum, þar sem Thelma Smáradóttir, fagstjóri og sálfræðingur hjá Píeta-samtökunum, og Guðrún Birna le Sage, markaðsstjóri samtakanna, eru gestir. Margir að leita til samtakanna Að sögn Thelmu leituðu 535 til samtakanna í fyrra, utan þeirra sem þegar voru í meðferð. Tekin voru um 2.500 viðtöl og voru við þá sem glímdu við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaða, sem og aðstandendur og syrgjendur þeirra sem höfðu tekið sitt eigið líf. Þá bárust samtökunum um 6.200 símtöl, en að sögn Thelmu voru þau símtöl ekki einungis frá fólki sem var að leita eftir aðstoð í gegnum hjálparsíma samtakanna heldur einnig frá þeim sem leituðust eftir ráðgjöf. „Við finnum það samt að símtölin eru þung. En fólk er að leita til okkar, sem er gott. Við viljum að fólk hringi. Þannig er hjálpina að fá og það er kannski erfiðasta skrefið.“ Frétt af mbl.is Fjöldi útkalla daglega vegna andlegrar vanlíðanar Frétt af mbl.is Að hlusta geti gefið von og hlýju 535 leituðu til Píeta samtakanna utan þeirra sem þegar voru í meðferð. Stærstur hluti þeirra sem leitar til samtakanna er ungt fólk. Ljósmynd/Colourbox Markmið að ná til eldri kynslóða Thelma segir langstærstan hluta þess hóps sem leitar til samtakanna vera ungt fólk á aldrinum 18-30 ára. Þá leiti örlítið fleiri konur til samtakanna. „En við þurfum að ná betur til eldri kynslóða. Ég held að það sé bara markmið og eitthvað sem við þurfum að halda áfram að gera af því vandinn er þarna til staðar líka.“ Þá bætir Guðrún Birna við að þrátt fyrir að færri karlmenn leiti til samtakanna en konur leiti fleiri karlmenn til þeirra heldur en annars staðar í heilbrigðiskerfinu. Þá hafi 50% þeirra sem leita til samtakanna ekki leitað sér hjálpar vegna vanda síns áður. „Þannig að 50% eru að opna sig í fyrsta sinn um þessi mál sem sýnir að fólk er að treysta Píeta samtökunum fyrir þessum vanda.“ Brot úr þættinum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Áskrifendur geta horft á þáttinn í heild sinni með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Mikilvægt að tryggja starfsemi Píeta til framtíðar Embætti landlæknis bendir á að mikilvægt sé að þeir sem glíma við sjálfsvígshugsanir segi einhverjum frá líðan sinni, hvort sem er aðstandanda eða hafi samband við Hjálparsíma Rauða krossins 1717, eða á netspjalli 1717.is, við hjúkrunarfræðing í netspjalli á heilsuvera.is eða við ráðgjafa í síma Píeta-samtakanna s. 552-2218. Píeta-samtökin bjóða einnig upp á ráðgjöf og stuðning fyrir aðstandendur þeirra sem glíma við sjálfsvígshugsanir. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi bendir landlæknisembættið á stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöðinni í síma 551-4141 og hjá Píeta-samtökunum í síma 552-2218. Thelma Smáradóttir, fagstjóri og sálfræðingur hjá Píeta samtökunum, og Guðrún Birna le Sage, markaðsstjóri samtakanna eru gestir Dagmála. mbl.is/Kristófer Liljar Fær lygilegar upphæðir Dósaþjófar gómaðir á Húsavík Vilja auka virði sjávarafurða á Grænlandi „Við finnum að símtölin eru þung“ „Flottustu hús sem ég hef séð“ Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan „Það er aldrei of seint“: FBI rannsakar hanska Úkraínumenn fólk, ekki „tortímendur“ Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan 180 milljónir króna í starfslokasamninga Brynjar hæfastur en er með hugann við annað Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Fær lygilegar upphæðir Dósaþjófar gómaðir á Húsavík Vilja auka virði sjávarafurða á Grænlandi „Við finnum að símtölin eru þung“ „Flottustu hús sem ég hef séð“ Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Fólk farið að meðtaka veruleikann Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Clinton sakar Trump um yfirhylmingu Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan 180 milljónir króna í starfslokasamninga Brynjar hæfastur en er með hugann við annað Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum