Í heimildarþáttunum Náttúran kallar heimsækir Lára Zulima Ómarsdóttir fólk sem býr í nánum tengslum við náttúruna og fer með viðmælendum sínum á þeirra uppáhaldsstaði, þar á meðal leynistaði sem fáir þekkja. Hún sýnir svo bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard þessar einstöku náttúrugersemar, en hann sérhæfir sig í ljósmyndun á köldum slóðum. Í síðasta þætti heimsótti Lára Arndísi Guðmundsdóttur á Bjarnastöðum við Hvítársíðu í Borgarfirði, en þar hefur fjölskylda hennar búið í meira en 140 ár. Arndís á sér uppáhaldsstað sem leynist í aldagömlu, mosavöxnu hrauni og á fáa sína líka á Íslandi. Smelltu hér til að horfa á þáttinn í spilara RÚV.