- What: Nature documentary highlights natural landmarks
- Impact: General nature content
Í heimildarþáttunum Náttúran kallar ræðir Lára Zulima Ómarsdóttir við fólk sem býr í nánum tengslum við náttúruna og fær það til að sýna sér uppáhaldsstaði, þar á meðal leynistaði sem fáir þekkja. Hún sýnir svo bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard þessar náttúrugersemar. Í síðasta þætti raðarinnar heimsótti Lára Víði Hólm Guðbjartsson, síðasta bóndann í Ketildölum. Hann býr á bænum Grænuhlíð, sem stendur í Bakkadal í Arnarfirði á Vestfjörðum. Dalurinn er gróinn með skeljasandsstrandlengju, en ofar eru skriður svo brattar og hömrum girtar að erfiðar eru yfirferðar. Víðir segist hvergi annars staðar vilja vera og fór með Láru og Chris á þann stað sem að hans mati er sá fegursti á allri jarðarkringlunni. Smelltu hér til að horfa á þáttinn í Spilara RÚV.