Rýmingu var aflétt á Ísafirði í morgun og búið er að opna alla vegi nema um Dynjandisheiði. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er enn í gildi á Vestfjörðum og Norðurlandi og gul viðvörun tekur gildi í kvöld. Það var ekkert ferðaveður á Vestfjörðum um helgina og á þekktum snjóflóðasvæðum var vegum lokað. Veðrið var þannig að nánast öll þéttbýli á Vestfjörðum voru einangruð. Varðskipið Þór hefur verið til taks á Ísafirði til að tryggja öryggi. Vegfarendur hvattir til að aka með gát Reitur 9 á Ísafirði var rýmdur vegna snjóflóðahættu. Þar er til að mynda Netagerðin, sem hýsir sorpflokkun og vinnustofur listamanna. Rýmingu var aflétt í morgun. Lögreglan á Vestfjörðum segir eitthvað hafa verið um að bílar festust á heiðum og björgunarsveitir fóru í þau verkefni. Í tilkynningu frá lögreglu á samfélagsmiðlum segir: „Nú í morgun voru allir vegir sem lokaðir voru síðustu daga á Vestfjörðum opnaðir á ný. En hættan á ofanflóðum er talin minni. Vegfarendur eru þó hvattir til að aka með gát, en hiklaust undir bröttum hlíðum. Töluverður snjór hefur safnast í fjalllendi og brattar hlíðar og ekki hægt að útiloka hreyfingu.“ Vegagerðin fór af stað upp úr fimm í morgun í snjómokstur. Allir vegir á Vestfjörðum eru opnir nema Dynjandisheiði. Það gæti þó tekið einhvern tíma að opna Dynjandisheiðina. Þar féllu tvö snjóflóð á framkvæmdasvæði Borgarverks. Snjóalög virðast óstöðug Magni Hreinn Jónsson, ofanflóðasérfræðingur á Veðurstofu Íslands segir tilkynningar um snjóflóð tínast inn eftir því sem veðrið batnar. Að auki þeim sem féllu á Dynjandisheiði féllu snjóflóð fyrir ofan Flateyrarveg og á Ólafsfjarðarveg til viðbótar við þau sem var vitað af í gær. Veðrið í dag er skaplegra, það hefur dregið úr vindi og skafrenningi en óvissustig vegna snjóflóðahættu er enn í gildi. „Það bætir í vind og snjókomu seinni partinn og í kvöld,“ segir Magni. „Bæði á Vestfjörðum og Norðurlandi. Snjóalög virðast vera óstöðug og sérstaklega fyrir norðan hafa verið að falla stór snjóflóð.“ Óvissustig enn í gildi Óvissustig eru enn í gildi á Vestfjörðum og Norðurlandi. Magni segir útlit fyrir að svo verði áfram í gegnum veðrið í kvöld og nótt. Á morgun þarf svo að meta stöðuna. Almenningi er bent á að vera ekki á ferð undir bröttum hlíðum, til að mynda á fjallaskíðum eða vélsleðum.