Meta, móðurfélag Facebook, er að undirbúa stóra hópuppsögn sem gæti náð til 20% eða meira af starfsfólki tæknirisans, samkvæmt þremur heimildarmönnum Reuters . Með þessu horfir Meta til þess að draga úr kostnaði eftir umfangsmiklar fjárfestingar í innviðum tengdum gervigreind ásamt því að einblína á aukna skilvirkni innan samstæðunnar með aðstoð gervigreindar. Hlutabréfaverð Meta hefur hækkað um 2,5% í fyrstu viðskiptum í dag. Ekki er búið að taka endanlega ákvörðun um umfang hagræðingaraðgerðanna, að sögn heimildarmanna. Æðstu stjórnendur félagsins hafa nýlega upplýst lykilstarfsfólk um áformin og sagt því að undirbúa sig fyrir hagræðingaraðgerðir. Í lok árs 2025 störfuðu nærri 79 þúsund manns hjá Meta. Störf 15-16 þúsund manns hjá fyrirtækinu gætu því verið í húfi, ef horft til að fækka stöðugildum um 20%. Greinandi hjá fjárfestingarbankanum Jeffries skrifaði í gær að 20% fækkun starfsmanna myndi auka tekjur félagsins á hvern starfsmann á ári úr 2,2 milljónum dala í 3,5 milljónir dala. Þetta yrði stærsta hópuppsögn félagsins frá því að það sagði upp ríflega 11 þúsund manns, sem samsvaraði þá um 13% af starfsfólki félagsins, í nóvember 2022. Fjórum mánuðum síðar sagði félagið upp um 10 þúsund manns til viðbótar. Mark Zuckerberg, forstjóri og stofnandi Meta, hefur sett mikla áherslu á að fyrirtækið sæki fram á sviði spunagreindar. Fyrirtækið hefur boðið umfangsmikla launapakka, sumir að andvirði verðmæti hundruð milljóna dala yfir fjögurra ára tímabil, til að laða að hæfasta fólkið í sínum geira í nýtt ofurgreindarteymi. Sjá einnig Draga verulega úr fjárfestingu í metaverse Meta hefur áður gefið út að það stefni að því að fjárfesta fyrir 600 milljarða dala í uppbyggingu gagnavera fyrir árið 2028. Auk þess hefur tæknirisinn keypt nokkur gervigreindarfyrirtæki, nú síðast Moltbook . Zuckerberg hefur gefið til kynna að fjárfestingarnar muni leiða til aukinnar skilvirkni innan samstæðunnar. Hann sagði í janúar að hann væri farinn að sjá að „verkefni sem kröfðust áður stórra teyma geti nú verið unnin af einum mjög hæfileikaríkum einstaklingi“.