Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fækka starfsfólki en hækka laun stjórnenda

Read Full Article →

Tæknirisinn Meta tilkynnti í gær 700 manna hópuppsögn samkvæmt fréttaflutningi New York Times . Uppsagnirnar eru sagðar tengjast niðurskurði hjá fyrirtækinu á meðan það beinir sjónum sínum í auknum mæli að gervigreind. Minna en sólarhring fyrir uppsagnirnar kynnti Meta nýja hlutabréfauppbót fyrir sex æðstu stjórnendur fyrirtækisins sem gæti komið til með að hækka laun þeirra um 920 milljónir dala á næstu fimm árum. Meta segir að markmið nýja hlutabréfakerfisins sé að halda í hæfileikaríkt fólk á tímum gervigreindarumbóta og ýta undir metnaðarfullan vöxt. Sjá einnig Þróar gervi­greindarað­stoðar­mann fyrir sjálfan sig Þessar andstæður innan fyrirtækisins, þ.e.a.s. uppsagnir starfsmanna samhliða launahækkunum hjá æðstu stjórnendum, eru sagðar undirstrika þær breytingar sem gervigreindin er þegar farin að hafa á tæknigeirann. Þróunin hjá Meta er ekki ný af nálinni en Mark Zuckerberg, forstjóri Meta, eyddi milljörðum dala á síðasta ári í að ráða gervigreindarsérfræðinga. Á sama tíma stóð til að fækka um 10-15% af starfsmönnum Reality Labs, deildar sem þróaði sýndarveruleika og vörur fyrir Metaverse.

Share this article