Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þróar gervi­greindarað­stoðar­mann fyrir sjálfan sig

Read Full Article →

Mark Zuckerberg, forstjóri Meta, vinnur að því að þróa sérstakan gervigreindaraðstoðarmann (e. AI agent) sem hefur það markmið að hjálpa honum í starfi. Gervigreindaraðstoðarmaðurinn, sem er enn í þróun, er þegar byrjaður að hjálpa Zuckerberg að sækja upplýsingar innan fyrirtækisins hraðar. Forstjórinn nýtir t.d. þennan aðstoðarmann sinn til að fá svör við ákveðnum hlutum sem hann hefði annars þurft að fá með því að eiga í samskiptum við marga einstaklinga, samkvæmt heimildum WSJ . Þróun gervigreindaraðstoðarmanna er hluti af stefnu Meta, sem telur um 78 þúsund starfsmenn, til að fækka stjórnunarstigum og aðlaga starfsmenn að aukinni notkun gervigreindar. Fyrirtækið lítur á innleiðingu gervigreindar sem lykilþátt er varðar samkeppnishæfni til lengri tíma, sérstaklega gagnvart minni sprotafyrirtækjum sem hafa byggt starfsemi sína alfarið út frá gervigreind. Sjá einnig Sagður undir­búa að segja upp 20% starfs­manna Tilraunir með svokallaða persónulega gervigreindaraðstoðarmenn eru þegar hafnar innan fyrirtækisins. Hið umrædda kerfi hefur aðgang að vinnugögnum starfsmanna og getur átt samskipti við aðra starfsmenn og gervigreindaraðstoðarmenn þeirra. Notkun gervigreindar hefur aukist hratt innan Meta og er hún m.a. nýtt við frammistöðumat starfsmanna. Sumir innan fyrirtækisins segja að stemningin sé svipuð og hún var á fyrstu árum Facebook, þegar áhersla var lögð á hraða og nýsköpun. Aðrir telja hins vegar að þessar hröðu breytingar og aukin áhersla á gervigreind hafi aukið óvissu meðal starfsmanna, m.a. vegna mögulegra uppsagna. Sjá einnig Sagður undir­búa að segja upp 20% starfs­manna

Share this article