Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Beint: Ársfundur Samorku

Read Full Article →

Ársfundur Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja á Íslandi, fer fram í Borgarleikhúsinu í dag og hefst kl. 13. Á fundinum verður fjallað um uppbyggingu og áfallaþol ómissandi innviða á tímum aukinnar alþjóðlegrar óvissu og hraðra breytinga í öryggisumhverfi Evrópu. Á fundinum koma fram þrír ráðherrar ríkisstjórnarinnar; Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og Jóhann Páll Jóhannsson , umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Einnig mun Charlie Edwards, yfirráðgjafi (e. senior fellow) í stefnumótun og þjóðaröryggi hjá International Institute for Strategic Studies, IISS flytja erindi. Á meðal annarra sem taka til máls eru Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Finnur Beck framkvæmdastjóri Samorku, Hanna Björg Konráðsdóttir skrifstofustjóri Raforkueftirlitsins, Hildigunnur Thorsteinsson forstjóri Veðurstofu Íslands og Katrín Helga Hallgrímsdóttir lögfræðingur Samorku.

Share this article