Samkeppnishæfni Íslands og samstarf atvinnulífs og stjórnvalda til að efla öryggi var rauði þráðurinn á opnum ársfundir Samorku, sem var haldinn undir yfirskriftinni „Uppbygging á óvissutímum. Eflum áfallaþol ómissandi innviða.“ © Eyþór Árnason (Eyþór Árnason) Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, flutti erindi á fundinum þar sem hann sagði mikinn metnað innan orkugeirans á Íslandi enda tækifærin fyrir Ísland ærin. © Eyþór Árnason (Eyþór Árnason) Sólrún Kristjánsdóttir, stjórnarformaður Samorku, benti á að orku- og veitufyrirtæki hér á landi standi frammi fyrir mikilli uppbyggingu á næstu árum, fjárfestingum sem nemi hundruðum milljarða króna. © Eyþór Árnason (Eyþór Árnason) Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra, rakti í ræðu sinni margvíslega stefnumótun og aðgerðir stjórnvalda til að einfalda og bæta lagaumhverfi orku- og veitugeirans. © Eyþór Árnason (Eyþór Árnason) Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku og Hafdís Helga Helgadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku, ræddu við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra sem sagði m.a. að öryggisumhverfi Evrópu væri að breytast hratt og við gætum ekki lokað augunum fyrir fjölþáttaógnum sem að okkur steðja. © Eyþór Árnason (Eyþór Árnason) Charlie Edwards, sérfræðingur í stefnumótun og þjóðaröryggi hjá International Institute for Strategic Studies hugveitunni, flutti erindi. © Eyþór Árnason (Eyþór Árnason) Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði brýnt að fullnýta þá orku sem við höfum þegar sótt, styrkja flutningskerfið og halda áfram að afla nýrrar orku. © Eyþór Árnason (Eyþór Árnason) Jón Gunnarsson, verkefnisstjóri greiningar hjá Samorku, fór yfir könnun þar sem m.a. kom fram að mikill meirihluti aðildarfélaga Samorku telur breytingar á regluverki nauðsynlegar. © Eyþór Árnason (Eyþór Árnason) Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra gerði endurskoðun laga um almannavarnir að umtalsefni og sagði mikilvægt að skerpa á því að ógnir og áföll gætu líka verið af manna völdum. © Eyþór Árnason (Eyþór Árnason) Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi ráðherra og ritstjóri, ásamt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. © Eyþór Árnason (Eyþór Árnason) Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur. © Eyþór Árnason (Eyþór Árnason) Loftslagsbreytingar voru einmitt ofarlega á baugi í erindi Hildigunnar Thorsteinsson forstjóra Veðurstofu Íslands, sem benti m.a. á áhrif hlýinda og þurrka á orkuforða jökla og vatnsbúskap. © Eyþór Árnason (Eyþór Árnason) Katrín Helga Hallgrímsdóttir lögfræðingur Samorku benti á að orku- og veitugeirinn þyrfti að standa jafnfætis fjarskiptum og vegakerfi þegar kæmi að heimildum til að vernda innviði og byggja þá upp. © Eyþór Árnason (Eyþór Árnason) Bjarni Már Gylfason, leiðtogi samfélagsmála og samskipta hjá Rio Tinto á Íslandi. Umfjöllunin birtist í Viðskiptablaðinu .