Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Myndir: Fagþing Samorku 2026

Read Full Article →

Fagþing Samorku, einn stærsti vettvangur fagfólks í veitu- og orkugeiranum hér á landi, var haldið í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ síðustu viku. Á þinginu komu saman sérfræðingar, fyrirtæki og hagsmunaaðilar til að ræða þróun og áskoranir í hita-, vatns- og fráveitumálum. Dagskráin var fjölbreytt og innihélt fjölda erinda og málstofa þar sem fjallað var um nýjar lausnir og tækni í greininni. Samhliða yfir 70 fyrirlestrum um flest á milli himins og jarðar í faginu fór fram fagkeppni þar sem keppt var um titilinn Fagmeistari Samorku, auk vöru- og þjónustusýningar þar sem fyrirtæki kynna nýjasta búnað og lausnir. Þingið er mikilvægur vettvangur fyrir þekkingarmiðlun og tengslamyndun innan greinarinnar, en einnig tækifæri til að ræða framtíð innviða og sjálfbærni í orku- og veitumálum. Hundruð gesta sóttu þingið að þessu sinni. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift

Share this article