Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Myndir: Fagþing Samorku 2026

Read Full Article →

Fagþing Samorku, einn stærsti vettvangur fagfólks í veitu- og orkugeiranum hér á landi, var haldið í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ síðustu viku. Á þinginu komu saman sérfræðingar, fyrirtæki og hagsmunaaðilar til að ræða þróun og áskoranir í hita-, vatns- og fráveitumálum. Dagskráin var fjölbreytt og innihélt fjölda erinda og málstofa þar sem fjallað var um nýjar lausnir og tækni í greininni. Samhliða yfir 70 fyrirlestrum um flest á milli himins og jarðar í faginu fór fram fagkeppni þar sem keppt var um titilinn Fagmeistari Samorku, auk vöru- og þjónustusýningar þar sem fyrirtæki kynna nýjasta búnað og lausnir. Þingið er mikilvægur vettvangur fyrir þekkingarmiðlun og tengslamyndun innan greinarinnar, en einnig tækifæri til að ræða framtíð innviða og sjálfbærni í orku- og veitumálum. Hundruð gesta sóttu þingið að þessu sinni. Páll Erland, forstjóri HS Veitna, var ekki lengi að finna nafnspjaldið sitt við mætingu á Fagþing 2026. © Ólafur Hannesson (Ólafur Hannesson) Fjöldi fyrirtækja kynnti starfsemi sína á Fagþingi. Þar á meðal voru Ragnar Jónsson og Jóhann Kjartansson frá Stíflutækni og Lagnaviðgerðum. © Ólafur Hannesson (Ólafur Hannesson) Magnús Hafsteinsson og Anna Birgitta Geirfinnsdóttir, samstarfsfólk hjá HS Veitum, slógu á létta strengi. © Ólafur Hannesson (Ólafur Hannesson) Gestur Pétursson, forstjóri Umhverfis- og orkustofnunar, lét sig að sjálfsögðu ekki vanta og ávarpaði Fagþingið. © Ólafur Hannesson (Ólafur Hannesson) Á þinginu komu saman sérfræðingar, fyrirtæki og hagsmunaaðilar til að ræða þróun og áskoranir í hita-, vatns- og fráveitumálum. © Ólafur Hannesson (Ólafur Hannesson) Á þinginu fór fram fagkeppnin Fagmeistari Samorku sem fjölmiðlamaðurinn Andri Már Eggertsson, betur þekktur sem Nablinn, stýrði af miklum myndarskap. © Ólafur Hannesson (Ólafur Hannesson) Mikil spenna ríkti meðal áhorfenda á meðan fagkeppnin fór fram. © Ólafur Hannesson (Ólafur Hannesson) Keppendur lögðu allt í sölurnar til að hreppa titilinn Fagmeistari Samorku 2026. © Ólafur Hannesson (Ólafur Hannesson) Að dagskrá lokinni fór fram kokteill og heiðraði sólin gesti Fagþings með nærveru sinni. © Ólafur Hannesson (Ólafur Hannesson) Jón Gunnarsson, verkefnastjóri greininga hjá Samorku, og Katrín Helga Hallgrímsdóttir, lögfræðingur Samorku. © Ólafur Hannesson (Ólafur Hannesson) Skemmtikrafturinn Jóhann Alfreð Kristinsson hélt uppi stemningunni á hátíðarkvöldverði í tilefni Fagþings. © Ólafur Hannesson (Ólafur Hannesson) Aron Heiðar Steinsson, veitustjóri Reykjanesbæjar, er einn af fulltrúum í samráðshópi um fráveitur. Hann fór yfir nýja fráveitutilskipun ESB sem verður innleidd hér á landi á næstu árum og áhrif hennar. © Ólafur Hannesson (Ólafur Hannesson)

Share this article