Security News

Cybersecurity news aggregator

🏦
INFO News Viðskiptablaðið

Geyma gullið í kjallara fyrrum dag­blaðs

  • What: Wyoming government purchases gold
  • Impact: Part of strategy to ensure economic stability
Read Full Article →

Wyoming-ríki í Bandaríkjunum hefur fest kaup á 2.312 túnsum af gulli, sem nú eru metnar á um 11,6 milljónir dala, og geymir birgðirnar í sérút­búnum hvelfingum í húsi sem áður hýsti dag­blaðið Ca­sper Star-Tri­bu­ne. Kaupin eru liður í nýrri stefnu ríkisins um að nota eðal­málma sem vörn gegn efna­hags­legri óvissu, verðbólgu og veikingu Bandaríkja­dals. Ríkið keypti gullið í desember eftir að samþykkt voru lög sem kveða á um að fjár­festinga­safn þess skuli inni­halda eðal­málma. Sam­kvæmt lögunum var varið um 10 milljónum dala til kaupanna. Verðmæti gullsins hafa síðan hækkað. Stuðnings­menn laganna segja til­ganginn vera að undir­búa ríkið undir mögu­legt efna­hags­legt áfall síðar meir, ekki síst í ljósi vaxandi skuldasöfnunar al­ríkis­stjórnarinnar. Bob Ide, öldunga­deildarþing­maður Repúblikana í Wyoming og flutnings­maður frum­varpsins, segir að skuldaþróunin í Bandaríkjunum stefni að lokum í hættu­lega átt. Með þessu bætist Wyoming í vaxandi hóp ríkja sem vilja gefa gulli og silfri stærra hlut­verk í opin­berri fjár­mála­stjórn. Utah ruddi brautina árið 2011 þegar ríkið stað­festi gull og silfur á ný sem lög­mætan gjald­miðil. Á síðasta ári voru þar jafn­framt samþykkt lög sem heimila allt að 140 milljóna dala fjár­festingu í eðal­málmum, sem geta numið allt að tíu pró­sentum af vara­sjóði ríkisins. Svipaðar hug­myndir hafa nú verið lagðar fram í ríkjum á borð við Vestur-Virginíu, Tennes­see og Georgíu. Í Vestur-Virginíu hefur meðal annars verið lagt til að heimilt verði að nýta allt að tíu pró­sent opin­bers fjár til að fjár­festa í gulli og silfri, en í Tennes­see hefur nefnd þingsins stutt frum­varp um 50 milljóna dala sér­stakan eðal­málma­sjóð. Fyrrum skrifstofur Ca­sper Star-Tri­bu­ne. Gull­forði Wyoming er geymdur hjá einka­fyrir­tækinu Wyoming Reserve í Ca­sper. For­stjóri fyrir­tækisins, Josh Phair, hefur lýst hvelfingunni sem marg­laga öryggis­geymslu sem sé fest niður í berg­grunn og undir ströngu eftir­liti. Geymslu­gjaldið nam 7.021 dal á ári en kostnaðurinn tekur breytingum í takt við verðmæti gullsins. Ekki eru þó allir sann­færðir um skyn­semi stefnunnar. Mark Gor­don, ríkis­stjóri Wyoming og sam­flokks­maður frum­varps­höfunda, leyfði lögunum að taka gildi án þess að undir­rita þau og sagði þau geta grafið undan fjár­hags­legu öryggi ríkisins. Hvelfingin í kjallaranum getur geymt töluvert magn af eðalmálmum. © Skjáskot (Skjáskot) Hann hefur meðal annars bent á að gull geti sveiflast mikið í verði og sé síður seljan­legt en hefðbundnari eignir í fjár­festingasöfnum ríkja.

Share this article