Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vinnur að þróun á gervigreindarhakkara

  • What: Employee joins cybersecurity firm for research and development
  • Impact: Enhances company's security capabilities
Read Full Article →

Guðmundur Karl Karlsson hefur gengið til liðs við netöryggisfyrirtækið Defend Iceland sem sérfræðingur í rannsóknum og þróun. Hann kemur til fyrirtækisins með víðtæka þekkingu og yfir 20 ára reynslu úr tæknigeiranum. Hann kemur til Defend Iceland frá Íslandsbanka þar sem hann tilheyrði upplýsingatæknisviði bankans. „Guðmundur þekkir vöruna okkar frá sjónarhorni heiðarlegs hakkara og kemur með einstaka blöndu af djúpri tæknilegri þekkingu og reynslu úr rekstri stórra kerfa. Það er mikill styrkur fyrir okkur að fá hann í teymið og sýna hvað við höfum verið að vinna að,“ segir Theódór Ragnar Gíslason, framkvæmdastjóri og stofnandi Defend Iceland. Sjá einnig Defend Iceland á danskan markað Guðmundur byrjaði sem heiðarlegur hakkari í villuveiðigátt Defend Iceland þar sem hann vakti athygli fyrir hæfni sína til að finna áður óþekkta öryggisveikleika í ýmsum tölvukerfum. „Ég hlakka til að taka þátt í að þróa öryggislausnir sem nýta gervigreind til að gera kerfi öruggari og rannsaka veikleika á nýstárlegan hátt. Það er einstakt að geta sameinað reynslu mína úr hakkaraheiminum við þróun á nýjungum hjá Defend Iceland,“ segir Guðmundur Karl.

Share this article