Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Telja ríkið, sveitarfélagið og skólann veikja stöðu Hóla

Read Full Article →

Innlent | mbl | 17.3.2026 | 16:00 Telja ríkið, sveitarfélagið og skólann veikja stöðu Hóla Hólar í Hjaltadal. mbl.is/Sigurður Bogi Setja bókamerki Íbúar og velunnarar Hóla í Hjaltadal og Háskólans á Hólum telja að ríkið, sveitarfélagið Skagafjörður og háskólinn séu í sameiningu að veikja stöðu Hóla í Hjaltadal og starfsemi háskólans þar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá fundi þeirra. Þar segir enn fremur að viðhaldi hafi verið mjög ábótavant á Hólum í Hjaltadal vegna langvarandi fjárskorts og deilna milli ríkis og sveitarfélags um þjónustu við íbúa. Síðan háskólinn ákvað að hann myndi ekki koma að annarri starfsemi á svæðinu en þeirri sem tengdist skólastarfinu beint hafi ástandið versnað til muna og ofan á það hafi grunnskólanum verið lokað haustið 2024. Allt hefur þetta dregið úr velferð íbúa á Hólum og nágrenni, að því er fram kemur í yfirlýsingunni. „Þetta er að mörgu leyti óskiljanlegt, enda er tilvera og uppbygging háskólans órjúfanleg Hólastað,“ segir í yfirlýsingunni. Byggist ekki á sterkri framtíðarsýn Íbúarnir og velunnararnir vitna í minnisblöð tveggja starfshópa máli sínu til stuðnings. Annars vegar starfshóps um framtíðarskipulag Hóla í Hjaltadal, sem skilaði minnisblaði í október 2024, og hins vegar framkvæmdahóps um Hóla í Hjaltadal, sem skilaði minnisblaði 15. október 2025. Segir í yfirlýsingunni að tillögurnar þar byggist ekki á sterkri framtíðarsýn fyrir Hóla í Hjaltadal. Þar sé ekki gert ráð fyrir að háskólinn muni eflast á Hólum. Þá er enn fremur lagt til í minnisblöðunum að aðalbygging háskólans verði seld einkaaðilum, ásamt fleiri byggingum. „Aðalbygging háskólans hefur verið hjartað í starfsemi skólans og ímynd hans. Í húsinu eru fjölmargar kennslustofur, fundarými, skrifstofur háskólans, skrifstofur starfsfólks, bókasafn, mötuneyti, íþróttaaðstaða, þ.m.t. íþróttasalur og sundlaug. Slík aðstaða er forsenda fyrir kennslu bæði nemenda á staðnum og fjarnema sem reglulega mæta í staðbundnar lotur. Einnig er slík aðstaða lykill að blómlegu mannlífi fyrir aðra íbúa staðarins auk nemenda,“ segir í yfirlýsingunni. Setja fram kröfur Segir hópurinn tillögurnar enn fremur ekki hafa verið unnar í samráði við íbúa staðarins, almenna starfsmenn skólans eða aðra hagaðila. „Þær virðast byggja á þekkingarleysi og takmarkaðri framtíðarsýn fyrir Hóla í Hjaltadal, sem eins af merkustu mennta-, menningar- og sögustöðum landsins.“ Íbúar hafi óskað eftir samtali og samráði en ekkert hafi verið brugðist við því. Gera þeir því eftirfarandi kröfur: Að víðtækt samráð verði haft við íbúa, starfsmenn háskólans og velunnara skólans og staðarins varðandi hugmyndir um uppbyggingu hans áður en slíkar hugmyndir eru settar formlega fram og komi til framkvæmda. Að tryggt verði að heimili og höfuðstöðvar Háskólans á Hólum, líka sem þátttakanda í háskólasamstæðu Háskóla Íslands, verði á Hólum í Hjaltadal. Snúið verði frá áformum um sölu á aðalbyggingu Háskólans á Hólum en þess í stað lagt fjármagn í viðgerðir og viðhald á byggingunni þar sem m.a. verður unnið að loftræstingu og aðgengi fatlaðra. Að ríkið standi við samninga um uppbyggingu innviða Háskólans á Hólum og gengið verði frá kaupum á Brúnastöðum og byggingu aðstöðu fiskeldis- og fiskalíffræðideildar á Sauðárkróki. Að ríkið, Háskólinn á Hólum og sveitarfélagið Skagafjörður vinni í sameiningu, með íbúum, að því að umhverfi Hólastaðar komist til þess vegs og virðingar sem sómi er að. Að uppbygging Hóla í Hjaltadal sem eins af helstu áfangastöðum Íslands verði gerð í samráði við þá sem þar búa og starfa. Að lögð verði áhersla á sterka stöðu kirkjunnar á Hólum og að embætti vígslubiskups Hólastiftis verði eflt og áfram staðsett heima að Hólum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Guðrún vill fresta þjóðaratkvæðagreiðslunni Vill ekki sjá að Carrick verði áfram Telja ríkið, sveitarfélagið og skólann veikja stöðu Hóla New bill could drive up taxes on energy projects Góa kynnir bleikt páskaegg í takmörkuðu upplagi Umræðan Af hverju að sækja um Evrópusambandsaðild? Viðreisn farin að kannast við aðlögunarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Svona á að styrkja þjónustu við börnin Segir af sér vegna Íransstríðsins Gerðu árás á sendiráð Bandaríkjanna í Írak Páll kom að magnaðri lækningu Rosie Mest lesið Í gær Í vikunni Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Hviður geta náð allt að 35 m/s Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Ætla að læra af mistökum sínum Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB Rannsökuðu slysstað á Miklubraut Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Norðvestan stormur og hríð Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu Loka fyrir umferð vegna rannsóknar „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Snýr aftur eftir endurhæfingu Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Þóra skipuð yfirlögregluþjónn Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Guðrún vill fresta þjóðaratkvæðagreiðslunni Vill ekki sjá að Carrick verði áfram Telja ríkið, sveitarfélagið og skólann veikja stöðu Hóla New bill could drive up taxes on energy projects Góa kynnir bleikt páskaegg í takmörkuðu upplagi Umræðan Af hverju að sækja um Evrópusambandsaðild? Viðreisn farin að kannast við aðlögunarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Norðvestan stormur og hríð Fannst nakin og örend í snjóskafli Efnahagsvísitalan áfram botnfrosin Sterkari keppinautur eftir að SAS sleit samstarfi Mest lesið Í gær Í vikunni Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Hviður geta náð allt að 35 m/s Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Ætla að læra af mistökum sínum Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB Rannsökuðu slysstað á Miklubraut Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Norðvestan stormur og hríð Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu Loka fyrir umferð vegna rannsóknar „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Snýr aftur eftir endurhæfingu Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Þóra skipuð yfirlögregluþjónn Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir

Share this article