Innlent | Morgunblaðið | 19.4.2026 | 12:30 Deilt um framtíð Hóla í Hjaltadal Íbúar og velunnarar Hóla í Hjaltadal hafa lýst miklum áhyggjum af framtíð staðarins. mbl.is/Sigurður Bogi Guðmundur Sv. Hermannsson [email protected] Setja bókamerki Íbúar og velunnarar Hóla í Hjaltadal eru ómyrkir í máli í yfirlýsingu sem samþykkt var á fundi þeirra nýlega. Segir þar að tillögur sem nú liggja fyrir um framtíðarskipulag Hóla hafi verið unnar án nokkurs samráðs við íbúa staðarins, almenna starfsmenn Háskólans á Hólum og aðra hagaðila tengda Hólastað og virðist byggjast á þekkingarleysi og takmarkaðri framtíðarsýn fyrir Hóla sem eins af merkustu mennta-, menningar- og sögustöðum landsins. „Það er skuggi yfir Hólum,“ sagði einn viðmælenda Morgunblaðsins úr þessum hópi. Fjárskortur og deilur Í yfirlýsingunni segir m.a. að vegna langvarandi fjárskorts og deilna milli sveitarfélags og ríkis varðandi þjónustu við íbúa hafi viðhaldi, jafnt húsnæðis og gatna, verið mjög ábótavant. Síðan háskólinn tók þá ákvörðun, í desember 2023, að skólinn myndi ekki koma að annarri starfsemi á Hólum en tengdist beint skólastarfinu hafi ástand versnað til muna. Einnig hafi grunnskólanum á staðnum verið lokað haustið 2024. „Allt þetta hefur dregið úr velferð íbúa á Hólum og nágrenni. Því virðist sem ríkisvaldið, sveitarfélagið Skagafjörður og Háskólinn á Hólum séu í sameiningu að veikja stöðu Hóla í Hjaltadal og starfsemi háskólans þar. Þetta er að mörgu leyti óskiljanlegt, enda er tilvera og uppbygging háskólans órjúfanleg Hólastað,“ segir síðan. Eignir verði seldar Skipaður var starfshópur fyrir nokkrum árum um framtíðarskipulag Hóla og hann skilaði tillögum í minnisblaði til forsætisráðherra haustið 2024. Í kjölfarið var skipaður framkvæmdahópur til að fylgja eftir tillögum starfshópsins og hann skilaði minnisblaði í október sl. þar sem segir að miklar breytingar séu í farvatninu er varði stöðu og starfsemi Háskólans á Hólum en í apríl á síðasta ári var undirritað samkomulag milli Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum um stofnun háskólasamstæðu. Í minnisblaðinu segir m.a. að stefnt sé því að starfsemi Háskólans á Hólum flytji úr gamla skólahúsinu á Hólum og nærliggjandi húsum eigi síðar en 2026. Leggur framkvæmdahópurinn m.a. til að þær fasteignir sem Háskólinn á Hólum yfirgefi verði færðar í tímabundna umsjá Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseigna sem undirbúi sölu á eignunum á almennum markaði með viðeigandi skilyrðum og áætlun um uppbyggingu á svæðinu. Þetta eigi m.a. við um gamla skólahúsið og fleiri hús. Þessi áform eru gagnrýnd í fyrrgreindri yfirlýsingu velunnara Hóla og segir þar að mjög líklegt sé að sala á aðalbyggingu háskólans ásamt tilfærslu á stjórn- og stoðkerfi skólans til Sauðárkróks stórskaði starfsemi hans. Framkvæmdahópurinn leggur einnig til að stofnuð verði gestastofa, Hólastofa, og í stjórn hennar sitji fulltrúar Byggðasafns Skagfirðinga, Þjóðminjasafns Íslands, kirkjunnar, Háskólans á Hólum og Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Byggðasafnið starfræki menningarmiðlun í Hólastofu og beri faglega ábyrgð á gerð og viðhaldi sýningar í Nýjabæ í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands og hestafræðideild Háskólans á Hólum. Auk þess reki Hólastofa móttöku í Auðunarstofu og Hóladómkirkju í samvinnu við vígslubiskup þar sem fjallað verði um menningar- og kirkjusögu Hóla. Fundur með íbúum Í yfirlýsingu sinni setja íbúar og hollvinir Hóla fram nokkrar kröfur, þar á meðal að haft verði samráð við íbúa varðandi hugmyndir um uppbyggingu staðarins, tryggt verði að heimili og höfuðstöðvar Háskólans á Hólum verði á Hólum, snúið verði frá áformum um sölu á aðalbyggingu skólans en þess í stað lagt fjármagn í viðgerðir og viðhald á byggingunni, og að lögð verði áhersla á sterka stöðu kirkjunnar á Hólum. Nú hefur verið ákveðið að Hólmfríður Sveinsdóttir rektor Háskólans á Hólum, Margrét Hallgrímsdóttir formaður framkvæmdahópsins, Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri Skagafjarðar og Valur Árnason lögfræðingur hjá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti hitti íbúa og velunnara Hóla á fundi 27. apríl nk. Hólmfríður segir við Morgunblaðið að hún fagni þessum fundi og þar muni gefast tækifæri til að koma á framfæri meiri upplýsingum um framtíðaráform stjórnvalda og skólans og sveitarfélagsins um Hólastað og ekki síst þjónustu við íbúa og Háskólann á Hólum og hvernig hægt sé að efla skólann innan þess ramma sem honum er settur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Íslendingaliðið tapaði bronsleiknum Deilt um framtíð Hóla í Hjaltadal „Vaða áfram eins og börn í frekjukasti“ Íslendingaslagur í úrslitaleiknum Everton – Liverpool kl. 13, bein lýsing Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 300 ferðir á spítalann Uppgangur samfélags í þjóðbraut Málið komið fram á fölskum forsendum Tvö gripin með rúm 30 kíló af amfetamíni Mest lesið Í gær Í vikunni Fólk þurfi að vera hrætt Pétur vill rauða dregilinn út Flugvél hvolfdi í lendingu Kirkjan verður af háum fjárhæðum Jón komst í gegn en Trump ekki Þórdís Lóa vill taka við starfi sveitarstjóra Milljónir gengu út í kvöld Alveg eins ljúffengt og hið erlenda kex Segir ÁTVR hafa brotið gegn eigin einkaleyfi Akureyringar lagfæra lýsinguna Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Halla enn á lægri launum en Ragnar Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið Laun formanns VR hækkuð 300 ferðir á spítalann Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Vinsælum veitingastöðum lokað Nýjast á mbl.is » Íslendingaliðið tapaði bronsleiknum Deilt um framtíð Hóla í Hjaltadal „Vaða áfram eins og börn í frekjukasti“ Íslendingaslagur í úrslitaleiknum Everton – Liverpool kl. 13, bein lýsing Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skólalóðin drullusvað og óboðleg nemendum 300 ferðir á spítalann Agabrot flugstjórans ólíðandi Hormússund opið og tilbúið fyrir „fulla umferð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fólk þurfi að vera hrætt Pétur vill rauða dregilinn út Flugvél hvolfdi í lendingu Kirkjan verður af háum fjárhæðum Jón komst í gegn en Trump ekki Þórdís Lóa vill taka við starfi sveitarstjóra Milljónir gengu út í kvöld Alveg eins ljúffengt og hið erlenda kex Segir ÁTVR hafa brotið gegn eigin einkaleyfi Akureyringar lagfæra lýsinguna Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Halla enn á lægri launum en Ragnar Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið Laun formanns VR hækkuð 300 ferðir á spítalann Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Vinsælum veitingastöðum lokað