- What: Road closures in Iceland due to heavy snowfall and avalanche risks.
- Impact: Residents of Siglufjord and Olafsfjord are advised to stay indoors and avoid travel.
Allir vegir til og frá Fjallabyggð voru lokaðir í morgun og þangað til síðdegis í dag. Íbúar Siglufjarðar og Ólafsfjarðar voru því innlyksa framan af degi. Vegna snjóflóðahættu ríkir óvissustig á vegunum. Siglufjarðarvegur opnaði um klukkan þrjú en auk þess verður reynt að opna Ólafsfjarðarmúla fljótlega. Þar á hins vegar að loka aftur í kvöld vegna snjókomubakka sem von er á um klukkan átta í kvöld. Páll Ágúst Þórarinsson, veðurfræðingur hjá Vegagerðinni, segir enn mögulegt að snjóflóð falli úr þekktum farvegum á svæðinu. „Þetta gengur svona aðeins niður hérna í kvöld en svo kemur aftur snjókomubakki yfir norðanvert landið kannski svona um sjö, átta, níu í kvöld og getur bætt aðeins í sem varir fram undir morgun“. Að sögn Páls eru lokanirnar gerðar með öryggissjónarmið að leiðarljósi. Mikilvægt sé að íbúar fylgist grannt með og kynni sér aðstæður áður en farið er af stað.