Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu

  • What: The Icelandic Meteorological Office is forecasting uncertain amounts of snowfall in the capital region.
  • Impact: Yellow weather warnings are in effect for South Iceland and Southeast Iceland.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 17.2.2026 | 20:40 Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Gular veðurviðvaranir eru í gildi í nótt á Suðurlandi og suðausturlandi. mbl.is/Eyþór Ósamræmi er í veðurspám Veðurstofu Íslands hversu mikið mun snjóa á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Einhverjar spár sýna litla snjókomu á meðan aðrar spá 10 til 20 sentímetrum af snjó. Gular veðurviðvaranir tóku gildi á Suðausturlandi síðdegis í dag og eru í gildi þar til klukkan þrjú á morgun. Norðaustan hríð gengur yfir landshlutann þar sem vindur gæti náð 10-18 m/s með snjókomu og slæmu skyggni. Að sögn Óla Þórs Árnasonar, veðurfræðings á Veðurstofu Íslands, hefur snjóað í Vík í Mýrdal síðastliðna þrjá klukkutíma og mun gera áfram inn í nóttina. Á Suðurlandi mun einnig snjóa í nótt og ofankoma verður fram eftir degi á morgun. Gul veðurviðvörun tekur gildi á miðnætti á Suðurlandi vegna snjókomu og norðaustanhríðar. „Það mun snjóa býsna drjúgt á Suðurlandi og sunnanverðum Reykjanesskaga. Þannig að Þorlákshöfn, Ölfussvæðið og í rauninni eiginlega mestallt svæðið hérna á Suðurlandi. Síðan er ágætis snjókoma á Suðausturlandi líka,“ segir Óli. Hann segir að hvassast verði undir Eyjafjallajökli og Mýrdalsjökli þar sem meðalvindur undir Eyjafjallajökli verði um 15 til 20 m/s þar sem vindhviður geta farið upp í 30-35 m/s. Óli Þór Árnason er veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. mbl.is/Sigurður Bogi Verður gaman að vakna í fyrramálið „Mesta óvissan er hversu mikið af þessu kemur yfir Hellisheiðina. Þetta snýst aðallega um það hvort það komi eitthvað smá fjúk eða hvort þetta verði einhverjir sentímetrar,“ segir Óli. Aðspurður segir hann að snjókoman á höfuðborgarsvæðinu eigi að byrja um miðja nótt og snjóa þar til klukkan 10 í fyrramálið. Hann segir að sumar veðurspár sýni nær enga snjókomu á meðan aðrar spá 10 til 20 sentímetrum af snjó. Spurður hvort íbúar höfuðborgarsvæðisins þurfi að undirbúa sig undir sambærilegan dag og 28. október í fyrra, þegar mikill snjór féll á höfuðborgarsvæðið á einni nóttu, segir Óli ekki útlit fyrir það. „Það er náttúrulega miklu meiri vindur núna. Þetta mun þá örugglega fjúka og mynda einhverja skafla hér og þar en þetta verður ekki endilega eins og teppi yfir öllu,“ segir Óli. „Þannig það verður gaman fyrir þá sem sofa í nótt að vakna í fyrramálið og sjá hvort við séum með einn til þrjá sentímetra [af snjó] eða tíu til tuttugu,“ segir hann. Snjór í Reykjavík setti allt úr skorðum í lok október. Fjöldi ökumanna þurfti að reiða sig á aðstoð annarra til að losa fararskjóta sína úr snjónum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Sleppa ekki næstu nótt Fljótlega eftir kvöldmatarleytið á morgun dettur snjókoman niður suður af landinu. „En þá kemur hins vegar snjókomubakki inn á norðanvert landið. Þannig að þótt þeir sleppi í nótt þá sleppa þeir ekki næstu nótt,“ segir Óli. Vörðu titla sína í Kópavogi „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Fær lygilegar upphæðir Dósaþjófar gómaðir á Húsavík Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Vonast til að geta fundið Lúðvík Úkraínumenn fólk, ekki „tortímendur“ Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Fólk farið að meðtaka veruleikann Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Brynjar hæfastur en er með hugann við annað 180 milljónir króna í starfslokasamninga Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Vörðu titla sína í Kópavogi „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Fær lygilegar upphæðir Dósaþjófar gómaðir á Húsavík Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Úkraínumenn fólk, ekki „tortímendur“ Ásgeir: „Við finnum til ábyrgðar“ Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan „Það er aldrei of seint“: FBI rannsakar hanska Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Brynjar hæfastur en er með hugann við annað 180 milljónir króna í starfslokasamninga Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum

Share this article