- What: Report on legal actions related to election violations
- Impact: No direct security impact
Þann 29. janúar síðastliðinn gaf embætti héraðssaksóknara út 60 ákærur fyrir eitt og sama hegningarlagabrotið; brot gegn valdstjórninni. Þetta er hundraðasta og sjötta grein hegningarlaga þar sem mælt er fyrir um að hver sem ræðst með ofbeldi eða hótunum um ofbeldi á opinberan starfsmann, þegar hann gegnir skyldustarfi sínu, skuli sæta fangelsi. Átaksverkefni að gefa ákærurnar út Rétt er að taka fram að refsingin fyrir brot af þessu tagi er þó yfirleitt ekki fangelsisdómur heldur alla jafnan þrjátíu, sextíu eða níutíu daga skilorðsbundið fangelsi sem fellur niður haldi fólk sig réttu megin laganna á þeim tíma. Hér ber líka að hafa í huga að þeir sem eru ákærðir fyrir brot af þessu tagi eru oftar en ekki veikt fólk á vondum stað. Karl Ingi Vilbergsson saksóknari gaf nánast allar ákærurnar út og þegar þetta er lesið var búið að birta þrjátíu og níu. Spegillinn fékk þær ákærur afhentar þar sem fjölmiðlar eiga rétt á ákærum þremur dögum eftir að þær hafa verið birtar. Lögreglumenn hafa ítrekað í fjölmiðlum kvartað undan auknu ofbeldi í starfi en Karl Ingi segir ákærurnar ekki tengjast þeirri umræðu; þetta hafi verið hluti af átaksverkefni innan embættisins; málin hafi verið farin að safnast upp þar sem önnur hafi verið í forgangi en nú hafi gefist tækifæri til að að grynnka aðeins á bunkanum. Tveir rannsakendur í fullu starfi Héraðssaksóknari gefur út ákærur í alvarlegustu brotunum; fyrir manndráp, kynferðisbrot og fíkniefnasmygl, en er svo líka falið að sjá um þennan anga því, eins og Karl Ingi bendir á, fer ekki vel á því ef lögreglustjórar taka fyrir brot gegn eigin starfsmönnum. Tveir rannsakendur á vegum embættis héraðssaksóknara eru í fullu starfi við að rannsaka þessi mál sem langoftast, en þó ekki alltaf, beinast að lögreglumönnum. Málin eru sum nokkurra ára gömul; það elsta sem Spegillinn fann í bunkanum er síðan 2022 en flest eru síðan í fyrra og fyrir tveimur árum. Ákærurnar leiða það í ljós að lögreglumenn geta átt von á því að þeim sé hrint á bílskúrshurð, þeir séu slegnir eða kýldir í andlitið og að það sé hrækt á þá. Kýldi lækni og sparkaði í hjúkrunarfræðing Í einni ákæru er karlmaður í Reykjavík ákærður fyrir að henda rafmagnshlaupahjóli í lögreglumann. Fjölskyldum lögreglumanna er hótað og þess eru dæmi að þeir séu bitnir. Fólk missir stjórn á sér í Leifsstöð þegar það er handtekið þar og klípur í kynfæri lögreglumanna þegar verið er að færa það í fangaklefa. Í ákærunum sem Spegillinn fékk afhentar er líka að finna brot gegn starfsmanni barnaverndar, fangaverði og í einu máli er karlmaður ákærður fyrir að hóta að sprengja upp bráðamóttökuna í Fossvogi. Og af því að starfsmenn bráðamóttökunnar hafa ítrekað bent á slæmar aðstæður þar er í öllum þessum ákærum að finna mál karlmanns sem kýlir lækni í höfuðið, kreistir úlnlið á sjúkraliða og sparkar í hjúkrunarfræðing. Þarna er líka mál manns sem hafði samband við einn einn tvo og laug því að hann hefði gert eitthvað sem hann hefði ekki átt að gera; hann fékk í framhaldinu samband við fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra og sagðist þar hafa meitt einhvern sem varð þannig til þess að neyðarleit var sett af stað með dróna, fótgangandi lögreglumönnum og lögreglubílum. Sömuleiðis er þarna ákæra þar sem yfirmanni heilbrigðisstofnunar barst tölvupóstur og honum hótað vegna starfa sinna og í einu máli varð lögreglumaður fyrir ítrekuðu kynþáttahatri þegar hann flutti mann frá Fífuhvammsvegi í Kópavogi á lögreglustöðina í Hafnarfirði. Flest málin verða þingfest á næstu dögum í Héraðsdómi Reykjavíkur og Héraðsdómi Reykjaness.