Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Samþykkt að hefja agamál gegn Karim Khan vegna ásakana um kynferðisbrot

  • What: Legal proceedings against Karim Khan
  • Impact: Political/legal development
Read Full Article →

Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hefur ákveðið að hefja agamál gegn aðalsaksóknaranum Karim Khan eftir að hafa fengið nýjar upplýsingar um ásakanir gegn honum fyrir kynferðisbrot gegn kvenkyns aðstoðarmanni á skrifstofu hans. The Washington Post hefur þetta eftir ónafngreindum heimildarmönnum kunnugum málinu. Khan, sem rannsakar stríðsglæpi, glæpi gegn mannúð og stríðsglæpi, er í leyfi vegna málsins. Hann þvertekur að hafa brotið af sér en blaðið segir skýrslu rannsakenda Sameinuðu þjóðanna og frásagnir vitna renna stoðum undir ásakanirnar. Þrír dómarar segja gögnin ekki hafin yfir vafa og lögmenn Khans segja þau ekki benda til brota, samkvæmt umfjöllun Reuters . Fulltrúar nokkurra Afríkuríkja vildu að agarannsókninni lyki þar með en niðurstaðan varð að henni skyldi fram haldið.Embættismenn á skrifstofu saksóknara sendu bréflega beiðni um að Khan héldi ekki áfram störfum. Rannsóknin hefur valdið nokkrum titringi innan dómstólsins sem bætist við refsiaðgerðir Bandaríkjanna , meðal annars vegna handtökuskipana gegn ísraelskum embættismönnum fyrir meinta stríðsglæpi. Meirihluti 125 aðildarríkja Alþjóðlega sakamáladómstólsins þarf til að samþykkja að Khan verði vikið frá störfum. Áður en til þess kæmi hefur Khan þrjátíu daga til að bregðast við ásökununum.

Share this article