Mun fleiri stjórnendur iðnfyrirtækja telja nú að aðstæður í efnahagslífinu séu slæmar fyrir þeirra fyrirtæki en þeir sem telja þær góðar. Þetta er alger viðsnúningur frá því fyrir ári þegar þessu var öfugt farið. 36% svarenda í könnun meðal stjórnenda iðnfyrirtækja innan Samtaka iðnaðarins (SI) telja aðstæður í efnahagslífinu á Íslandi slæmar fyrir þeirra fyrirtæki. Þetta er aukning frá því fyrir ári þegar 17% töldu aðstæður í efnahagslífinu slæmar. Einnig dregur verulega úr fjölda þeirra sem telja aðstæður góðar. Ríflega fjórðungur svarenda, eða 26%, telur að aðstæður í efnahagslífinu séu góðar nú en fyrir ári var það ríflega helmingur, eða 54%, sem mat aðstæður góðar. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift