Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fleiri svartsýnir í öllum greinum

Read Full Article →

Mun fleiri stjórnendur iðnfyrirtækja telja nú að aðstæður í efnahagslífinu séu slæmar fyrir fyrirtæki þeirra en þeir sem telja þær góðar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í greiningu SI sem byggir á niðurstöðum könnunar sem Outcome framkvæmdi meðal stjórnenda iðnfyrirtækja innan samtakanna í febrúar og mars á þessu ári. Þegar horft er til svara eftir greinum iðnaðarins sést að hærra hlutfall stjórnenda í öllum greinum metur efnahagsaðstæður slæmar en góðar. Mestur er munurinn í framleiðsluiðnaði, en innan hans falla til dæmis stóriðja og matvælaiðnaður. Þar telja 50% stjórnenda að efnahagsaðstæður séu slæmar fyrir fyrirtæki þeirra nú en 24% telja þær góðar. Í þjónustuiðnaði telja 42% stjórnenda að efnahagsaðstæðurnar séu slæmar og 21% að þær séu góðar. Í tækni- og hugverkaiðnaði telja 34% að þær séu slæmar en 23% að þær séu góðar og í byggingariðnaði og mannvirkjagerð telja 30% að þær séu slæmar en 28% að þær séu góðar. Í öllum helstu greinum iðnaðarins er hlutfall stjórnenda sem telur að aðstæður í efnahagslífinu muni versna næstu sex til tólf mánuði hærra en þeirra sem telja að þær muni batna. Mestur er munurinn í framleiðsluiðnaði, þar sem 43% telja að þær muni verða verri en einungis 14% að þær muni verða betri. Í þjónustuiðnaði er hlutfallið keimlíkt, en þar telja 42% að þær muni verða verri en 11% að þær muni verða betri. Í tækniog hugverkaiðnaði telja 31% að þær muni verða verri en 14% að þær verði betri og í byggingariðnaði og mannvirkjagerð telja 36% að þær verði verri en 17% að þær verði betri. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article