Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Aukin svartsýni í iðnaði

Read Full Article →

Mun fleiri stjórnendur iðnfyrirtækja telja nú að aðstæður í efnahagslífinu séu slæmar fyrir þeirra fyrirtæki en þeir sem telja þær góðar. Þetta er alger viðsnúningur frá því fyrir ári þegar þessu var öfugt farið. 36% svarenda í könnun meðal stjórnenda iðnfyrirtækja innan Samtaka iðnaðarins (SI) telja aðstæður í efnahagslífinu á Íslandi slæmar fyrir þeirra fyrirtæki. Þetta er aukning frá því fyrir ári þegar 17% töldu aðstæður í efnahagslífinu slæmar. Einnig dregur verulega úr fjölda þeirra sem telja aðstæður góðar. Ríflega fjórðungur svarenda, eða 26%, telur að aðstæður í efnahagslífinu séu góðar nú en fyrir ári var það ríflega helmingur, eða 54%, sem mat aðstæður góðar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í greiningu SI sem byggir á niðurstöðum könnunar sem Outcome framkvæmdi meðal stjórnenda iðnfyrirtækja innan samtakanna í febrúar og mars á þessu ári. Hærra hlutfall svarenda telur nú að aðstæður í efnahagslífinu séu slæmar en góðar. Það hefur ekki gerst síðan árið 2020 þegar Covid-19 heimsfaraldurinn lék efnahagslífið grátt. Stjórnendur iðnfyrirtækja meta aðstæður almennt verri nú fyrir þeirra fyrirtæki en þeir hafa gert síðan 2020. Að sama skapi er hlutfall þeirra sem meta aðstæður slæmar það hæsta sem mælst hefur síðan árið 2020. Stjórnendur voru spurðir hvernig þeir meti aðstæður í efnahagslífinu fyrir þeirra fyrirtæki næstu sex til tólf mánuði miðað við aðstæður í dag. Niðurstöður sýna að stærri hluti telur nú að aðstæður muni versna en batna. Einungis 15% svarenda eru bjartsýnir og telja að aðstæður í efnahagslífinu komi til með að batna á næstu misserum. Fyrir ári var þetta hlutfall 39%. Hins vegar telur rúmlega þriðjungur, eða 36%, að aðstæður versni á næstu sex til tólf mánuðum, samanborið við 12% í fyrra. Um helmingur telur nú að aðstæður í efnahagslífinu haldist óbreyttar og er það svipað hlutfall og í fyrra. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kemur út í fyrramálið. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér og blaðið hér .

Share this article