Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Aðlögun Þórdísar Kolbrúnar

Read Full Article →

Nú þegar hitnað hefur í Evrópukolunum á þingi hafa augun beinst að Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, fyrrverandi varaformanni Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra, en ýmsum hefur þótt hún tvístígandi í þeim efnum og bent á einarðan stuðning hennar við Bókun 35. Jafnvel þannig að spurningar hafa vaknað um hvort hún kynni að ganga til liðs við Viðreisn, þar sem vinkona hennar og arftaki, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, ræður ríkjum. Hafa menn svo fabúlerað um að Þórdís gæti fengið sendiherrastöðu í Lundúnum að launum, nú eða að utanríkisráðherra ráðgerði að skipa hana aðalsamningamann Íslands gagnvart ESB ef og þegar. Víst þykir að Þorgerður treysti henni vel til slíkra starfa, en vilji líka fá eitthvað fyrir snúð sinn. Taugaspenna sjálfstæðismanna minnkaði því ekki þegar Þórdís varði síðasta sunnudagspistli sínum í Morgunblaðinu í að reyna eyða áhyggjum þeirra sem óttast að Evrópuvegferð ríkisstjórnarinnar endi óumflýjanlega með fullri aðlögun að regluverki ESB meðan á aðildarviðræðum stendur. Við það skelfdust margir sjálfstæðismenn og héldu að hún gæti verið að fara að labba yfir til Viðreisnar. landsmanna yfir því að um Evrópusambandsaðild, að þar ræddi alfarið um aðlögunarviðræður eða að Ísland glataði fullveldi sínu og sjálfstæði með aðild. En að sama skapi vörpuðu þeir örugglega öndinni léttar á mánudagskvöld, þegar Þórdís steig í ræðustól Alþingis undir lok 1. umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna og tók af tvímæli um afstöðu sína: „Ég hef ekki skipt um skoðun um aðild að Evrópusambandinu en ég horfi á það leikkerfi sem við spilum eftir í dag og ég hef áhyggjur af því hvort það haldi.“ Svo hún er varla að taka við sendiherratign í þessari umferð, hvað sem síðar verður. Huginn og Muninn er einn af ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins.

Share this article