Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Áskoranir í um­hverfinu aldrei meiri

Read Full Article →

Íslandsstofa gegnir veigamiklu hlutverki þegar kemur að markaðssetningu Íslands á alþjóðasviðinu. Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, nefnir að í útflutningsstefnunni sem mörkuð var árið 2019 í víðtæku samráði við atvinnulíf og stjórnvöld og endurskoðuð í fyrra sé helst horft til þeirra markaðssvæða sem fyrirtækin vilja að Íslandsstofa beiti sér á. Í því samhengi nefna fyrirtækin aðallega Norður-Ameríku og Norður- og Vestur-Evrópu. „Þetta eru þeir markaðir sem fyrirtækin vilja að við séum að beina kröftum okkar að en þó líka með nokkra áherslu á Kína og Suðaustur-Asíu. Í ljósi þess hvernig þróunin er í heiminum þá er þetta í rauninni til meiri skoðunar en ella, ef svo má segja, og við erum í virku samtali við íslensk fyrirtæki um það hvort þau séu farin að skoða aðra markaði í ljósi þróunarinnar,“ segir Pétur. Alþjóðaviðskipti á óvissutímum er yfirskrift ársfundar Íslandsstofu sem fer fram síðar í dag. Þótt ekki megi merkja marktækar breytingar á útflutningi fyrirtækja að svo stöddu segir Pétur ljóst að allir séu meira á tánum. Óvissa í heimsmálum sé helsta áskorunin hjá öllum íslenskum fyrirtækjum sem starfa í útflutningi. „Það birtist í allt frá tollaóvissu til óvissu um efnahagslífið, hver verður kaupgeta neytenda á okkar helstu mörkuðum á næstu mánuðum, misserum og árum. Þetta er bara spurning sem er erfitt að svara. Þannig að áskoranirnar í umhverfinu hafa aldrei verið meiri,“ segir Pétur. Fyrirtæki þurfi nú að sinna sínum mörkuðum betur en nokkru sinni fyrr. „Samskipti við viðskiptavini og hagaðila hafa aldrei verið mikilvægari, sem og hagsmunagæsla stjórnvalda. Við finnum það að stjórnvöld eru vakin og sofin yfir því að gæta íslenskra viðskiptahagsmuna í hvívetna.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta nálgast fréttina í heild hér.

Share this article