Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Stoðirnar standa styrkum fótum

Read Full Article →

Þrátt fyrir auknar áskoranir á alþjóðavísu blasa gríðarleg tækifæri við í öllum útflutningsgeirum að sögn Péturs Þ. Óskarssonar, framkvæmdastjóra Íslandsstofu. Skipta má starfsemi Íslandsstofu í fimm geira; ferðaþjónustu, sjávarútveg, hugvit og tækni, listir og skapandi greinar, og orku og grænar lausnir. Hvað ferðaþjónustuna varðar hefur úr komum bandarískra ferðamanna undanfarna mánuði, sem er ákveðið áhyggjuefni, en á móti hefur hlutfall kínverskra ferðamanna aukist. Þótt ferðamönnum hafi ekki fjölgað frá árinu 2018 er mikill kraftur í ferðaþjónustunni. Í því samhengi nefnir Pétur að mælingar hafi verið gerðar á meðmælastigi gesta, svokallað NPS skor, þar sem farþegar sem eru að fara frá Íslandi eru spurðir hvort þeir myndu mæla með Íslandi sem áfangastað fyrir vini og ættingja. „Þetta er kvarði sem er á bilinu -100 til +100 og Ísland fær 73 stig. Sterkustu vörumerki heims eins og Apple, Nike, Mercedes Benz eru með á bilinu 40-60 stig. Þannig að íslensk ferðaþjónusta er að standa sig ótrúlega vel og það sýnir bara gæðin sem eru komin í þá grein,“ segir Pétur. Sjávarútvegurinn stendur síðan að sögn Péturs alltaf fyrir sínu og er ímynd íslenska sjávarútvegsins gríðarlega sterk á alþjóðamörkuðum. „Ég leyfi mér að fullyrða að íslenskur sjávarútvegur sé þekktur fyrir að vera besti sjávarútvegur í heimi. Það er umgengnin við auðlindina, tæknin, afhendingaröryggið og gæðin. Allt þetta vinnur svo rosalega vel saman og virði afurðanna er alltaf að aukast,“ segir Pétur en Ísland hafi notið góðs af því að hafa umgengist auðlindina með ábyrgum hætti. Á síðustu árum hefur áhersla í auknum mæli verið lögð á þær greinar útflutnings sem byggja ekki á auðlindum lands og sjávar. Pétur nefnir í því samhengi að áhugavert sé að horfa upp á vöxt hugverkaiðnaðar. „Það var lengi vel talað um að hugverkaiðnaðurinn væri á leiðinni að því að verða fjórða stoðin í okkar útflutningi. Hann er svo sannarlega orðinn það og vöxturinn var mikill frá árinu 2018 til seinasta árs, það var nánast þreföldun í útflutningi á hugverkaiðnaði á þeim tíma,“ segir Pétur en um sé að ræða spennandi geira sem fyrirséð er að muni vaxa enn frekar. Þá er mikil eftirspurn eftir íslenskri orku og grænum lausnum auk þess sem gríðarleg tækifæri felast í útflutningi á þekkingu í tengslum við jarðvarma, enda Ísland í einstakri stöðu á alþjóðavísu. Loks séu tækifæri þegar kemur að listum og skapandi greinum en þar hafi orðið talsverðar breytingar og er skemmst að nefna vinsældir Laufeyjar. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta nálgast fréttina í heild hér.

Share this article