Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þokast í rétta átt

Read Full Article →

Íslandsstofa gegnir veigamiklu hlutverki þegar kemur að markaðssetningu Íslands á alþjóðasviðinu en Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, segir hlutverk þeirra í grófum dráttum þrískipt. „Það er í fyrsta lagi mörkun og markaðssetning fyrir Ísland og íslenskar útflutningsgreinar, í öðru lagi er það útflutningsþjónusta sem við vinnum með íslenskum fyrirtækjum sem vilja hasla sér völl á erlendum vettvangi, og svo í þriðja lagi að kynna Ísland sem land fyrir erlenda fjárfestingu,“ segir Pétur. Verkefnið sem Íslandsstofa hefur staðið frammi fyrir undanfarin ár hafi verið að útvíkka ímynd Íslands og heldur það verkefni áfram. „Við sáum það þegar við byrjuðum að gera mælingar fyrir nokkrum árum síðan að Ísland var með mjög sterka ímynd og sterka stöðu í öllu því sem tengdist náttúrufegurð og áfangastað fyrir ferðamenn og svo framvegis. En í þeim ímyndaþáttum sem tengjast innri gerð samfélagsins, hvort Ísland sé gott land til þess að stunda nýsköpun og þróun, er gott viðskiptaumhverfi og annað þess háttar, þá vorum við að skora aðeins lægra en samkeppnislöndin,“ segir Pétur en hægt og rólega hefur verið breyting þar á. „Þarna eru engin stökk milli ára en þetta er í raun og veru allt að þróast í rétta átt, hægt og örugglega. Við sjáum að við erum smám saman að komast á sama stað og þau lönd sem við viljum bera okkur saman við.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta nálgast fréttina í heild hér.

Share this article