Innlent | mbl | 18.3.2026 | 10:21 | Uppfært 10:58 „Ömurlegt fyrir okkur í Eflingu“ „Stjórnvöld ásamt Samtökum atvinnulífsins verða að byrja að hugleiða af fullri alvöru hvernig þau vilja mæta okkur í haust,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar. mbl.is/Hallur Már Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Seðlabankinn hafi misst tökin „99,9 prósent líkur á að kjarasamningar losni“ Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Misvísandi hagvísar vandi Beint: Ásgeir útskýrir stöðuna » Fleiri tengdar fréttir „Þetta er leitt að sjá en það var mögulega ekki við öðru að búast,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar um vaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands í morgun en peningastefnunefndin þar á bæ hækkaði stýrivexti bankans um 0,25 prósentustig. „Það er ömurlegt fyrir okkur í Eflingu og okkur í breiðfylkingunni að sjá að þeir kjarasamningar sem við gerðum vorið 2024 – sem snerust um að ná niður verðbólgu og í kjölfar þess vöxtum – hafa ekki skilað þeim árangri sem til var ætlast,“ heldur hún áfram og segir ekki hægt að skella skuldinni á kjarasamningana. „Því sem raunverulega er um að kenna er að opinberir aðilar, og svo auðvitað fyrirtækin, stóðu ekki við gefin fyrirheit. Í kjölfar þessara kjarasamninga okkar gerðu opinberir aðilar kjarasamninga með allt öðrum hætti við fulltrúa opinberu félaganna svo þar urðu miklar umframhækkanir auk þess sem mikið launaskrið hefur orðið á almennum vinnumarkaði,“ segir Sólveig Anna. Forsendur samninga muni bresta Segir hún nú dragast upp mynd af því að fulltrúar verka- og láglaunafólks og samninganefndir þeirra hafi verið tilbúin að axla ábyrgð og fara í þá vegferð að reyna með hófstilltum launahækkunum að ná niður verðbólgu og vöxtum. „Svo fylgdu aðrir og hærra launaðir hópar í kjölfarið sem voru ekki tilbúnir að fara í þessa vegferð ásamt viðsemjendum okkar á almennum og opinberum markaði. Þá erum við komin í þá stöðu að forsendur kjarasamninga munu bresta næsta haust sem er eitthvað sem við vorum lengi framan af að vona að myndi ekki gerast,“ segir formaðurinn. Sólveig Anna er stödd á námskeiði fyrir trúnaðarmenn á almenna vinnumarkaðnum þegar viðtalið fer fram og segir að þar hafi einmitt farið fram umræða um hvað gerðist ef forsendur kjarasamninga brystu í haust, „hvernig félagið myndi nálgast þær aðstæður og við vorum einmitt að ræða það hér að við myndum taka þá stöðu mjög alvarlega og í okkar huga kæmi þá ekkert annað til greina en að komið yrði til móts við hagsmuni verka- og láglaunafólks sem framleiðir verðmæti með vinnu sinni og heldur öllum umönnunarkerfunum uppi“ segir Sólveig Anna. Skilaboð með skýrum hætti Viðstaddir á námskeiðinu hafi fremur vonast til að komið yrði til móts við hagsmuni verkafólks en að fara í að opna kjarasamninga og hækka laun allra. „Það auðvitað gengur ekki. Stjórnvöld ásamt Samtökum atvinnulífsins verða að byrja að hugleiða af fullri alvöru hvernig þau vilja mæta okkur í haust og hvernig skuli tryggja að þau sem öxluðu ábyrgðina vorið 2024 – en hafa þó þurft að verða mest fyrir barðinu á þessu ruglaða efnahagsástandi sem ríkir hér – fái þau skilaboð með skýrum hætti að fólk skilji þær aðstæður sem uppi eru í tilveruskilyrðum verkafólks og aðstandenda þess,“ segir hún enn fremur. Kveðst Sólveig Anna hafa átt gott samtal við Vilhjálm Birgisson formann Starfsgreinasambandsins og séu þau sammála um að líta verði til aðstæðna verka- og láglaunafólks þegar að því komi að skoða af fullri alvöru hvað hægt sé að gera til að reyna í það minnsta að halda friði á vinnumarkaði næsta haust. Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Seðlabankinn hafi misst tökin „99,9 prósent líkur á að kjarasamningar losni“ Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Misvísandi hagvísar vandi Beint: Ásgeir útskýrir stöðuna » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fara fram á rúmlega sjö ára dóm yfir Høiby Luther rís á ný Grafalvarleg staðan heimagert vandamál Ferlinum lokið hjá Schmeichel? „99,9 prósent líkur á að kjarasamningar losni“ Umræðan „Skjólið“ í ESB Hlustum á lögregluna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stórsýning í Laugardalshöll að hefjast Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot Fimm í gæsluvarðhald vegna lífshættulegrar árásar Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Mest lesið Í gær Í vikunni „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot Ísaksskóli á leið í Kópavog Seðlabankinn hafi misst tökin Þjófnaður og líkamsárás á heilbrigðisstofnun Misvísandi hagvísar vandi Fimm í gæsluvarðhald vegna lífshættulegrar árásar Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Hviður geta náð allt að 35 m/s Arndís Bára fær ár til viðbótar Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Ætla að læra af mistökum sínum Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Skoða veggjöld á öllum leiðum frá höfuðborgarsvæðinu Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Nýjast á mbl.is » Fara fram á rúmlega sjö ára dóm yfir Høiby Luther rís á ný Grafalvarleg staðan heimagert vandamál Ferlinum lokið hjá Schmeichel? „99,9 prósent líkur á að kjarasamningar losni“ Umræðan „Skjólið“ í ESB Hlustum á lögregluna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Misvísandi hagvísar vandi Þjófnaður og líkamsárás á heilbrigðisstofnun Alvarlegir annmarkar á brunavörnum Stuðla Seðlabankinn hafi misst tökin Mest lesið Í gær Í vikunni „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot Ísaksskóli á leið í Kópavog Seðlabankinn hafi misst tökin Þjófnaður og líkamsárás á heilbrigðisstofnun Misvísandi hagvísar vandi Fimm í gæsluvarðhald vegna lífshættulegrar árásar Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Hviður geta náð allt að 35 m/s Arndís Bára fær ár til viðbótar Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Ætla að læra af mistökum sínum Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Skoða veggjöld á öllum leiðum frá höfuðborgarsvæðinu Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“