Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Nettur og kraftmikill Toyota Aygo

Read Full Article →

Í eldri kynslóðum var hann búinn lítilli 1,0 lítra bensínvél en í nýju gerðinni hefur sú vél vikið fyrir 1,5 lítra Full Hybrid-vél sem sameinar bensínvél og rafmótor. Kerfið skilar um 116 hestöflum, sem er umtalsverð aukning frá fyrri gerðum og gerir bílinn mun sprækari í akstri. Hröðunin endurspeglar þessa breytingu vel. Aygo X fer úr kyrrstöðu í 100 km/klst. á rúmum níu sekúndum, sem er talsvert betra en í fyrri gerðum Aygo. Þrátt fyrir aukin afköst helst eldsneytiseyðslan mjög lág. Opinber eyðslutala er um 3,7 lítrar á 100 kílómetra, sem gerir bílinn einn sparneytnasta kostinn meðal sambærilegra bíla. Hybrid-kerfið gerir bílnum einnig kleift að aka stundum eingöngu á rafmagni, einkum við hægan borgarakstur. Þetta dregur bæði úr eldsneytisnotkun og útblæstri. Nýja drifkerfið hefur þó haft áhrif á byggingu bílsins, en vegna stærri vélar hefur framhluti hans lengst lítillega miðað við fyrri gerð. Breytingin hefur þó lítil áhrif á heildarstærð bílsins og Aygo heldur áfram að vera stuttur og lipur í borgarumhverfi. Smæðin er einmitt meðal helstu kosta hans, þar sem auðvelt er að leggja bílnum í þröng stæði. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift

Share this article