Sænskur ríkisborgari var tekinn af lífi í Íran í dag. Frá þessu greinir sænska utanríkisráðuneytið. Maðurinn var handtekinn í júní í fyrra. Íranskir miðlar segja hann hafa verið grunaðan um njósnir og að hann hafi deilt myndefni með ísraelsku leyniþjónustunni Mossad, að því er segir í frétt Aftonbladet . „Það er augljóst að málsmeðferð sem leiddi til aftöku sænsks ríkisborgara hafi ekki verið í samræmi við lög,“ segir í yfirlýsingu Mariu Malmer Stenergard, utanríkisráðherra Svíþjóðar. Stenergard segir sænsk stjórnvöld ítrekað hafa tekið málið upp við fulltrúa stjórnvalda í Íran frá því að maðurinn var handtekinn. „Í þessum samskiptum höfum við lagt áherslu á væntingar Svía í þá veru að maðurinn fái sanngjörn réttarhöld og að hann verði ekki dæmdur til dauða,“ segir í yfirlýsingu ráðherrans. Í annarri yfirlýsingu segir Stenergard að sendiherra Írans hafi verið boðaður á fund til þess að stjórnvöld gætu formlega mótmælt aftökunni. Þau hafi fordæmt aftökuna harðlega. Aftökum klerkastjórnarinnar í Íran hefur farið fjölgandi á síðustu árum. Fjöldi þeirra tvöfaldaðist á milli áranna 2024 og 2025 þegar yfir 2.000 voru tekin af lífi, samkvæmt tölum mannréttindasamtakanna Human Rights Watch .