Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

1.639 voru teknir af lífi á síðasta ári

Read Full Article →

Írönsk stjórnvöld tóku að minnsta kosti 1.639 af lífi á síðasta ári samkvæmt tveimur mannréttindasamtökum. Þetta er mesti fjöldi aftaka á einu ári síðan 1989. Þá hefur aftökum fjölgað um 68% milli ára, en 975 voru teknir af lífi 2024. Norsku mannréttindasamtökin Iran Human Rights (IHR) og frönsku mannréttindasamtökin Together agains Death Penalty (ECPM) greindu frá þessu í sameiginlegri skýrslu. Samtökin vara við því að ef núverandi stjórnvöld haldi velli í Íran sé mikil hætta á að aftökum muni fjölga enn frekar og þær verði notaðar sem aðferð til kúgunar og ofsókna. Frá því að stríð hófst í Mið-Austurlöndum 28. febrúar hafa sjö verið teknir af lífi í Íran. Óttast er að sömu örlög bíði hundraða mótmælenda sem handteknir voru í fjöldamótmælum í Íran fyrr á árinu og bíða enn dóms.

Share this article