Þingmenn stjórnarandstöðunnar, aðallega Sjálfstæðisflokks, kröfðust þess við upphaf þingfundar að forseti þingsins beitti sér fyrir því að ríkisstjórnin fresti því að greiða atkvæði um frumvarp félagsmálaráðherra um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu. Þriðju og síðustu umræðu um frumvarpið lauk í gær og að óbreyttu verður það að lögum eftir atkvæðagreiðslu á morgun. Stjórnarandstaðan, auk hagfræðinga, aðila vinnumarkaðarins, Seðlabankans og fleiri, hefur gagnrýnt frumvarpið þar sem það felur í sér umtalsverðan kostnað fyrir ríkissjóð. Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, kvaddi sér hljóðs í upphafi þingfundar, undir liðnum fundarstjórn forseta, til að ræða efnahagsmál og sagði í ljósi stýrivaxtahækkunar í morgun væri umhugsunarvert að greiða ætti atkvæði um frumvarp sem vitað væri að væri verðbólguhvetjandi. Þingmenn stjórnarandstöðunnar komu upp í bunum til að flytja sama boðskap og breytti engu þótt forseti Alþingis minnti þingmenn á að ræður þeirra snerust á engan hátt um fundarstjórn forseta heldur eitthvað allt annað. Tilkynnti hún þingheimi, eftir ellefur ræður, að hún hefði meðtekið boðskapinn og svo aftur þegar ellefu þingmenn til viðbótar eða þar um bil höfðu höggvið í sama knérunn. Inn á milli snerist umræðan um hegðun í þingsal. Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar, benti á tiltekinn hóp þingmanna, sakaði þá um dólgslæti og dónaskap í garð þingmanna á meðan Jón Pétur Zimsen, Sjálfstæðisflokki, sakaði ráðherrabekkinn um slíkt hið sama.