Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ástæðulaust að gera uppvakning úr verðlagseftirlitinu

Read Full Article →

Innlent | mbl | 28.4.2026 | 21:45 Ástæðulaust að gera uppvakning úr verðlagseftirlitinu Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti nefndarálit minnihlutans með breytingartillögu fyrr í dag. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Kallað eftir Kristrúnu í þinginu Jón Pétur biðst afsökunar á orðum sínum „Þá þyrfti að fá annan forsætisráðherra“ Myndskeið: „Ég ætla ekki að fara út í það neitt nánar“ Hvetur nefndarmenn til að setja upp „staðreyndahatta“ » Fleiri tengdar fréttir Stjórnarandstaðan gagnrýnir frumvarp þess efnis að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti harðlega og leggur til að verðstýringarheimildir fjármála- og efnahagsráðherra verði felldar úr frumvarpinu. Í dag fór fram önnur umræða Alþingi um frumvarp þess efnis að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti tímabundið til þess að bregðast við óvissu á heimsmarkaði eldsneytis og vakta verðlagningu eldsneytis í landinu. Fyrsti minnihluti efnahags- og viðskiptanefndar hefur lagt til breytingartillögu þar sem lagt er til að fella út seinni hluta frumvarpsins sem kveður á um verðstýringarheimildir fjármála- og efnahagsráðherra , enda feli það í versta falli á sér brot á stjórnarskrá samkvæmt minnihluta nefndarinnar. Frétt af mbl.is Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Frétt af mbl.is Lækkun eldsneytisgjalda skili sér beint til neytenda Í versta falli brot á stjórnarskrá Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var flutningsmaður nefndarálits minnihluta efnahags- og viðskiptanefndar með breytingartillögu , sem kveður meðal annars á um að allar verðstýringarheimildir ráðherra verði felldar burt og að gildistími aðgerðanna verði framlengdur til 31. október 2026 vegna óvissu um stríðsátök. Málið fer Hildur yfir í færslu á Facebook-síðu sinni. Þar segir hún lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti tvímælalaust jákvæða aðgerð, en segir ástæðu þess að málið hafi verið skeggrætt útfærslu og valdheimildir fyrirhugaðs endurvakins verðlagseftirlits ríkisins. „Tillagan færir Samkeppniseftirlitinu valdheimildir, óskýrar og óljósar að umfangi, og ráðherra fengin heimild til að ákveða hámarksverð eða hámarksálagningu eða „annarri stýringu á verðlagningu og viðskiptakjörum,“ segir í færslu Hildar. „Sá opni tékki er í besta falli sýndarmennska, í versta falli brot gegn atvinnufrelsisákvæði stjórnarskrárinnar.“ Ósamræmi og stjórnarskrárvandi Helstu rök fyrsta minnihluta gegn verðstýringarákvæðum frumvarpsins eru meðal annars þau að of víðtækt framsal valds felist í heimildum ráðherra, sem ná samkvæmt frumvarpinu til „annarrar stýringar á verðlagningu eða viðskiptakjörum“. Þá gæti ósamræmis innan frumvarpsins hvað varðar eftirlitsskyldu Samkeppniseftirlitsins annars vegar og verðstýringarheimild ráðherra hins vegar, þar sem eftirlitsskyldan nái til þess hvort lækkun virðisaukaskatts skili sér til neytenda, en heimild ráðherra nái til skattverðsins sjálfs. Þar séu holur í miðjunni. Það sem einna veigamest þykir er þó að málið varðar stjórnarskrá, enda eru atvinnufrelsi og eignarréttur vernduð af 72. og 75. grein hennar, og telur minnihluti nefndarinnar að hvorki greinagerð frumvarpsins né nefndarálit meiri hluta innihaldi mat á því hvort almannahagsmunir krefjist í raun þess að grípa til verðstýringar. Það sé stjórnskipulega skylda sem hvíli á löggjafanum. Frétt af mbl.is Aðgerðirnar eðlilegar í ljósi hækkana Ástæðulaust að gera uppvakning úr verðlagseftirlitinu Hildur lýkur færslu sinni á því að minna á að Íslendingar þekki vel sögu verðlagseftirlits, sem hafi verið afnumið af góðri ástæðu eftir að hafa verið við lýði í einhverri mynd frá fullveldi og til loka níunda áratugarins. Íslendingar búi nú þegar við öflugasta eftirlitskerfi veraldar, auk þess sem slíkt kerfi sé til þess fallið að veita neytendum falskt öryggi og að þeir telji sig betur verndaða en raunin er. „ Það er ekkert því til fyrirstöðu að afgreiða lækkun eldsneytisverðs þegar í stað en engin ástæða er til þess að gera uppvakning úr verðlagseftirlitinu, “ segir Hildur að lokum. Tengdar fréttir Alþingi Kallað eftir Kristrúnu í þinginu Jón Pétur biðst afsökunar á orðum sínum „Þá þyrfti að fá annan forsætisráðherra“ Myndskeið: „Ég ætla ekki að fara út í það neitt nánar“ Hvetur nefndarmenn til að setja upp „staðreyndahatta“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Meira stressandi að vera á bekknum Ástæðulaust að gera uppvakning úr verðlagseftirlitinu Leyfir sér að vera bjartsýnn um ásetning oddvita Allt í hart eftir andlát Maradona Þorum ekki að tala um kynlíf Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Blikastaðaland – forsendur Mosfellinga Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Húsnæðismarkaðurinn vinnur gegn lágtekjufólki 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð Segir fulltrúa ESB hafa komið af fjöllum Ríkisstjórnin bregst við stöðu samgangna til Eyja Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Kristrún vill sjálf dæma Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Teikningar: Hér vill ríkið byggja íbúðir Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Nýjast á mbl.is » Meira stressandi að vera á bekknum Ástæðulaust að gera uppvakning úr verðlagseftirlitinu Leyfir sér að vera bjartsýnn um ásetning oddvita Allt í hart eftir andlát Maradona Þorum ekki að tala um kynlíf Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Blikastaðaland – forsendur Mosfellinga Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Furstadæmin segja skilið við OPEC Segir fulltrúa ESB hafa komið af fjöllum Friðarviðræður í járnum um sinn Segir að um sögulegan áfanga sé að ræða Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Kristrún vill sjálf dæma Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Teikningar: Hér vill ríkið byggja íbúðir Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“

Share this article