Hrafnarnir heyra að margir undra sig á því að tilnefningarnefnd Reita hafi lagt til að Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf., myndi taka sæti í stjórn fasteignafélagsins í stað Guðmundar Inga Jónssonar, sem dró framboð sitt til baka á dögunum. Ekki vegna þess að Davíð sé ekki hæfur til setu í stjórn Reita, heldur vegna hugsanlegra hagsmunaárekstra, enda mun eðli máls samkvæmt útfærsla Borgarlínunnar, sem enn er stefnt á að hefji akstur 2031, hafa mikil áhrif á fjölmörg fasteignaþróunarverkefni á höfuðborgarsvæðinu. Má til að mynda nefna í því samhengi stækkun og breytingu á gamla sjónvarpshúsinu á Heklureit í hótel á vegum Hyatt-keðjunnar, sem stefnt er á að verði opnað fyrir árslok. Líkja sumir þessu við að tilnefningin sé sambærileg við það ef Eggert Benedikt Guðmundsson forstjóri Hafró tæki sæti í stjórn Brims eða annars útgerðarfélags, nú eða ef Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, tæki sæti í stjórn Norðuráls. Hrafnarnir skrifuðu um þetta í blaðinu sem kom út í morgun. Um ellefuleytið í dag var svo tilkynnt um að Davíð hefði hætt við framboð til stjórnarinnar vegna „persónulegra ástæðna“. Nefndin ákvað því að leggja til að Pálmar Óli Magnússon verði kjörinn í stjórn Reita á aðalfundi félagsins. Sjá einnig Davíð hættir við og tilnefna nú Pálmar Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu sem kom út 18. mars 2026.