Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Leggja til að Davíð komi inn fyrir Guðmund

Read Full Article →

Tilnefningarnefnd Reita hefur lagt til að Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf., taki sæti í stjórn fasteignafélagsins í stað Guð­mundar Inga Jóns­sonar sem dró framboð sitt til baka á dögunum. Þetta kemur fram í viðauka við skýrslu nefndarinnar fyrir aðalfund Reita sem fer fram 25. mars næstkomandi. Viðskiptablaðið greindi frá því í síðustu viku að Guðmundur, sem er stærsti einkafjárfestirinn í hluthafahópi Reita, hefði ákveðið að hætta við að gefa kost á sér til endurkjörs í stjórn fasteignafélagsins vegna óánægju með hvernig staðið var að ákvörðun um hver skuli taka við stjórnarformennsku. Sjá einnig Stærsti einka­fjár­festirinn hættir í stjórn Reita Guðmundur, sem sóttist eftir formennsku, sagði í bréfi til stærstu hluthafa að formaður tilnefningarnefndar hefði komið því á framfæri að Árni Sigurjónsson, sem lagt er til að komi nýr inn í stjórnina, skyldi kjörinn stjórnarformaður að tilmæli stórra hluthafa. Guðmundur sagði því ljóst að aðrir stórir hluthafar treysti sér ekki til að leiða stjórn félagsins. Félög á vegum Guðmundar eiga samtals 5,25% hlut í Reitum. Tilnefningarnefndin segir að við mat sitt um hvern skyldi tilnefna eftir að Guðmundur dró framboð sitt til baka hafi hún sérstaklega horft til samsetningar stjórnar. Sjá einnig Frá Betri sam­göngum í nýtt sam­göngufélag Davíð Þorláksson er framkvæmdastjóri Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. (ASHB), sem voru stofnaðar 1. september 2025 og munu 1. júlí 2026 taka við rekstri almenningssamgangna á svæðinu, strætisvagna og Borgarlínunnar, þegar hún hefur akstur 2031. Áður var Davíð framkvæmdastjóri Betri samgangna ohf., sem er eigandi og þróunaraðili Keldnalands þar sem gert er ráð fyrir að rísi um 12.000 manna byggð og atvinnuhúsnæði sem rúmi um 6.000 störf. Hann var forstöðumaður hjá Samtökum atvinnulífsins og yfirlögfræðingur Icelandair Group. Hann var einnig yfirlögfræðingur Askar Capital og lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands. Tilnefningarnefndin leggur því til að eftirtalin verði kjörin í stjórn fasteignafélagsins: Anna Kristín Pálsdóttir, fyrst kjörin árið 2024 Elín Árnadóttir, tók sæti árið 2023 - sat áður í stjórn frá 2010-2019 Kristinn Albertsson, tók sæti í stjórn árið 2017 Árni Sigurjónsson Davíð Þorláksson Miðað við þetta er útlit fyrir að tvær breytingar verði því á stjórninni en Þórarinn Viðar Þórarinsson, sem hefur setið í stjórninni frá árinu 2009 og gegnt formennsku frá árinu 2015, gefur ekki kost á sér til endurkjörs. Sjá einnig Þórarinn að hætta sem stjórnar­for­maður Reita Nefndin lagði til að Árni Sigurjónsson, forstöðumaður hjá JBT Marel og fyrrverandi formaður Samtaka iðnaðarins, myndi taka sæti í stjórninni í stað Þórarins. Í tilnefningarnefnd Reita sitja Auður Ósk Þórisdóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Hilmar Garðar Hjaltason. Auður er formaður nefndarinnar.

Share this article