Guðmundur Ingi Jónsson, fráfarandi stjórnarmaður Reita, gagnrýndi framgöngu lífeyrissjóða í hluthafahópi fasteignafélagsins á aðalfundi þess í gær og beindi spjótum sínum sérstaklega að stærsta hluthafanum, Gildi, sem hann sagði hafa þröngvað sjónarmiðum sínum á stjórn þegar kemur að vali á formanni. Davíð Rúdólfsson, framkvæmdastjóri Gildis, hafnaði því að sjóðurinn hefði skipað tilnefningarnefnd fyrir og sagði að sér þætti skrítið að Guðmundur hafi gert tilkall um stjórnarformennsku. Davíð sagðist hafa raunverulegar áhyggjur af slíkri framgöngu. Leiður og reiður yfir ákvörðuninni Eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um tilkynnti Guðmundur stærstu hluthöfum félagsins þann 5. mars um að hann hefði ákveðið að draga framboð sitt í stjórn fasteignafélagsins til baka vegna óánægju með hvernig staðið var að ákvörðun um hver skuli taka við stjórnarformennsku Reita. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift